152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[14:29]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þegar beðið var um að grípa til 61. gr. þingskapa áðan þá brást hæstv. forseti við með því einhvern veginn að kenna þingflokksformönnum um; að það hefði ekki verið á dagskrá, að annað hefði verið rætt og ekkert hefði verið minnst á það á þingflokksformannafundi. Í staðinn hefði hæstv. forseti kannski getað sagt: Já, það er ágætishugmynd, við skulum hittast á eftir og ræða það saman. Það koma oft upp nýjar aðstæður, sérstaklega þegar fólk segir eitthvað. Það gerist að fólk segir eitthvað sem kannski þarf að pæla aðeins í og ræða um. Fólk fær kannski hugmyndir um málið og dýpri skilning á því eftir því sem umræðunni vindur fram. Þannig að ég vænti þess að forseti taki vel í þessa beiðni og spari þinginu smáumræður með því að segjast ætla að hitta þingflokksformenn og spjalla aðeins um þetta.