152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:35]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Þá minnir forseti á það sem áður var talað um; hér fer fram á eftir almenn umræða um fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 í framhaldi af framsögu fjármála- og efnahagsráðherra. Á eftir ráðherra munu talsmenn allra þingflokka taka til máls. Að loknum almennum umræðum um áætlunina munu fagráðherrar taka þátt í umræðum um einstaka málaflokka í dag, á morgun og á fimmtudagsmorgun. Veittur verður rýmri andsvararéttur við framsögu fjármála- og efnahagsráðherra, þ.e. það verður tryggt að fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka geti veitt andsvör við ræðu ráðherrans og verður tíminn í andsvörum með þeim hætti að það verða tvær mínútur í fyrri andsvörum og svörum og ein mínúta í síðara skiptið, bæði hjá ráðherra og þingmanni.