fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027, sem dreift hefur verið á þskj. 735. Þetta er fyrsta fjármálaáætlun nýrrar ríkisstjórnar og byggir hún í meginatriðum á gildandi fjármálaáætlun og nýrri fjármálastefnu sem samþykkt var á Alþingi í febrúar síðastliðnum. Í áætluninni endurspeglast áhersla ríkisstjórnarinnar á stöðugleika, efnahagslegar framfarir og kraftmikla verðmætasköpun á traustum grunni undanfarinna ára.
Góð staða í kjölfar heimsfaraldurs sýnir okkur svart á hvítu að halli á ríkissjóði er allt annað en tapað fé, þessi halli nýttist til að verja lífskjör og styðja við kraftmikinn viðsnúning. Til að stuðla að áframhaldandi árangri skiptir máli að stefnan fram á við sé enn skýr. Hægja þarf á vexti útgjalda og treysta grunninn á ný til að verja uppbyggingu og geta mætt óvæntum áföllum framtíðar.
Skuldastaða hins opinbera var ekki fyrirstaða í baráttunni við efnahagslegar afleiðingar heimsfaraldursins þar sem nægt svigrúm var til hallareksturs og skuldaaukningar. Með því gátum við stutt vel við hagkerfið og sögðum í upphafi að við vildum gera meira en minna því að kostnaðurinn af því að gera of lítið væri oft meiri en sá sem fylgir því að gera tímabundið of mikið, þegar upp er staðið. Á þeim tíma stóð samfélagið á traustum grunni ábyrgrar hagstjórnar undanfarinna ára, þar sem hagvaxtarskeið var nýtt til að koma jafnvægi á fjármál ríkissjóðs. Fyrir vikið var hægt að bregðast við af fullum krafti þegar áfallið skall á, gera meira en minna og standa með heimilum og fyrirtækjum. Ráðstafanir í ríkisfjármálum vegna faraldursins nema ríflega 280 milljörðum kr. á árunum 2020–2022 en umfang þeirra var mest á árunum 2020 og 2021.
Fjármálaáætlunin ber þess merki að komið er að kaflaskilum í opinberum fjármálum. Heimsfaraldurinn er í rénun, tveggja ára tímabili samdráttar er lokið og fram undan er nýtt hagvaxtarskeið. Við þurfum að huga að því að ná sjálfbærni og jöfnuði í ríkisfjármálunum, með því treystum við grunninn. Markmið stjórnvalda miðast við að draga jafnt og þétt úr afkomuhalla og stöðva hækkun skuldahlutfalla hins opinbera eigi síðar en árið 2026. Til að þeim markmiðum megi ná er mikilvægt að vöxtur útgjalda verði minni en vöxtur landsframleiðslunnar á tímabilinu.
Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands, sem liggur til grundvallar þessari áætlun, gerir ráð fyrir að hagkerfið leiti nokkuð hratt í átt til jafnvægis strax á næsta ári. Gert er ráð fyrir að umsvif í ferðaþjónustu aukist og atvinnuleysi minnki, en samkvæmt spánni er ekki að vænta viðlíka þensluskeiðs og hefur gjarnan fylgt samdráttarskeiðum í íslensku efnahagslífi. Gert er ráð fyrir því að ársverðbólga verði nær 6% á þessu ári en taki að lækka þegar líður á árið og verði við 2,5% verðbólgumarkmiðið frá og með árinu 2024. Þróun mála eftir innrás Rússa í Úkraínu hefur áhrif á stöðu efnahagsmála hér líkt og víðar. Til þessa hafa áhrifin ekki síst birst í verðhækkunum á hrávörumörkuðum, sem leggjast við misvægi framboðs og eftirspurnar eftir faraldurinn. Þótt áhrifin á íslensk heimili séu nokkur eru þau umtalsvert minni en víðast í Evrópu þar sem mörg heimili eru verulega háð gas- og olíuflutningum frá Rússlandi. Kostnaður vegna kyndingar og samgangna hefur þannig óvíða hækkað minna en hér á landi.
Óvissuþættirnir eru sömuleiðis innan lands, en þróun verðbólgu og vaxta á tímabilinu mun að talsverðu leyti ráðast af komandi kjarasamningum. Þar er til mikils að vinna að varðveita stöðugleikann og þá góðu stöðu sem hefur myndast hér síðustu misseri. Lífskjararannsókn Hagstofunnar bendir þannig til þess að hlutfall heimila sem eiga erfitt með að ná endum saman hafi aldrei verið lægra en árið 2021, en auk þess hafa aldrei færri talið byrði húsnæðiskostnaðar þunga. Eignastaða heimila er heilt yfir sterk, uppsafnaður sparnaður mikill og hlutfall vaxtakostnaðar af ráðstöfunartekjum hefur lækkað meðal allra tekjuhópa. Í dag er ríflega helmingur útistandandi fasteignalána heimila óverðtryggður og viðskiptabankarnir veittu hærri íbúðalán með föstum vöxtum en breytilegum árið 2021. Hlutfall heimila í vanskilum hefur aldrei verið lægra hér á landi en árið 2021, en það nam 0,9% í lok ársins.
Mikilvægasta hagsmunamál íslenskra heimila nú er að varðveita stöðugleikann eftir fremsta megni og vinna þannig gegn sveiflum í hagkerfinu. Það verður best gert með heilbrigðri heildarumgjörð, frekar en sértækum aðgerðum í hvert sinn sem verðbólga fer tímabundið yfir markmið Seðlabankans.
Virðulegi forseti. Eins og áður segir er gert ráð fyrir miklum afkomubata fyrir ríkissjóð samanborið við fyrri áætlanir. Batinn sést nú þegar í endurskoðaðri afkomuspá fyrir yfirstandandi ár þar sem afkoman er um 30 milljörðum kr. betri en gert var ráð fyrir í fjárlögum ársins. Áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir um 186 milljarða kr. halla en nú er gert ráð fyrir að hann verði 158 milljarðar kr. Afkomubatinn skýrist fyrst og fremst af hagvexti allt tímabil fjármálaáætlunar og kröftugum vexti á helstu tekjustofnum ríkissjóðs. Afkomubatinn á þessu ári skýrist m.a. af mjög sterkri einkaneyslu sem sást í hagtölum undir lok ársins. En fram á við litið er það landsframleiðslan sem skiptir mjög miklu máli. Tekjurnar munu vaxa í hlutfalli af landsframleiðslu fram á mitt tímabil fjármálaáætlunar og verður tekjustigið þá orðið sambærilegt því sem var árin 2016–2018.
Á tímum heimsfaraldursins var haldið áfram að lækka skatta. Með lækkun tekjuskatts og nýju framleiðniviðmiði við útreikning persónuafsláttar og þrepamarka hefur skattbyrði tekjulægri hópa lækkað sérstaklega og ráðstöfunartekjur aukist. Áfram verður stuðlað að því á áætlunartímabilinu að skattkerfið sé sanngjarnt og hvetjandi, og taki mið af síbreytilegu samfélagi.
Veruleg tækifæri, ef svo mætti orða það, felast í heildarendurskoðun á skattlagningu ökutækja. Það felast tækifæri í þessu í fleiri en einum skilningi. Í fyrsta lagi erum við að vinna að orkuskiptum í landinu og við getum beitt þessu kerfi til að ná markmiðum okkar þar. En við höfum líka á undanförnum árum verið með mjög ívilnandi reglur sem hafa skilað sér í því að við erum með mjög hátt hlutfall umhverfisvænna bifreiða í innflutningi og í nýskráningum en við þurfum að finna nýtt jafnvægi fyrir þessa tekjulínu. Eldsneyti og ökutæki hafa verið stór hluti af tekjustofnum ríkisins og við þurfum að huga að framtíðinni nú þegar orkuskiptin eru að ganga í garð. Þessi síðustu ár hafa tugmilljarða skattaívilnanir verið veittar í þágu kaupa á vistvænum bílum og við höfum þess vegna náð þessum mikla árangri með tilheyrandi jákvæðum loftslagsáhrifum og lægri rekstrarkostnaði heimila, við skulum ekki gleyma þeim þætti heldur.
Samhliða þessari jákvæðu þróun er mikilvægt að hægt sé að standa undir öflugri uppbyggingu og viðhaldi vegakerfisins. Undanfarinn rúman áratug hafa tekjur ríkissjóðs af umferð dregist verulega saman, og við boðum breytingar á þessu í áætluninni að þessu sinni. Það felur í sér að við smíðum framtíðartekjuöflunarkerfi þar sem skattlagning ökutækja endurspeglar í auknum mæli notkun á vegakerfinu og þennan nýja veruleika í vegasamgöngum og samgöngum almennt í landinu.
Virðulegi forseti. Ég vík næst að útgjaldaáætlun ríkissjóðs. Áætlunin ber þess merki að á árunum 2022 og 2023 er dregið verulega úr tímabundnum stuðningi vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta skiptir máli þegar umfang útgjaldahliðar ríkisins er borið saman við þetta tímabil, þ.e. þegar undanfarin ár eru borin saman við árin fram undan. Á árunum fyrir heimsfaraldurinn var mikil áhersla lögð á að efla og auka opinbera þjónustu, bæta réttindi í tilfærslukerfum og hækka fjárfestingarstig ríkisins. Frumgjöld ríkisins á árunum 2016–2019 jukust af þessum sökum verulega, eða um 5–6% að raunvirði á ári. Líkt og áður segir gerir áætlunin nú ráð fyrir að vöxtur útgjalda verði hægfara og minni en vöxtur landsframleiðslunnar á tímabilinu. Þannig er gert ráð fyrir að frumgjöld ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu lækki smám saman á tímabili áætlunarinnar og verði nálægt 28% af vergri landsframleiðslu í lok þess. Í þessu felst að raunvöxtur frumgjalda verður u.þ.b. 1% á ári að meðaltali. Gengið er út frá því að frumútgjöld ríkissjóðs aukist um tæpa 48 milljarða kr. frá áætlun yfirstandandi árs eða sem nemur 4,5% og verði um 1.120 milljarðar kr. á næsta ári eða 29,2% af vergri landsframleiðslu. Að jafnaði vaxa útgjöldin um 46 milljarða kr. að nafnvirði á ári eftir það eða um 3,9%. Stærstur hluti þeirrar aukningar er vegna áætlaðra launa- og verðlagshækkana á tímabilinu en þær nema um 37 milljörðum kr. á ári að meðaltali.
Af einstökum málefnasviðum vega heilbrigðismál þyngst, eins og oft er, og er áætlað að útgjöld nemi samtals 1.659 milljörðum kr. Þar má nefna að efling geðheilbrigðisþjónustu hefur verið forgangsmál ríkisstjórnarinnar og verður það áfram á tímabilinu. Gert er ráð fyrir sérstakri varanlegri aukningu framlaga til geðheilbrigðismála sem nemur 500 millj. kr. á fyrsta ári áætlunarinnar, en 100 millj. kr. hækkun á ári næstu tvö ár eftir það. Varanleg heildaraukning til geðheilbrigðismála nemur alls 1.650 millj. kr. á tímabilinu 2019–2025.
Annar stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs eru útgjöld til félags-, húsnæðis- og tryggingamála. Heildarútgjöldin á tímabilinu nema 1.430 milljörðum kr. og aukast samtals um 26,8 milljarða kr. á milli áranna 2022 og 2027.
Á áætlunartímabilinu er m.a. gert ráð fyrir auknum framlögum til endurskoðunar á örorkuhluta almannatrygginga þar sem áhersla verður lögð á starfsendurhæfingu og ýmis vinnumarkaðsúrræði. Þá hækka útgjöld vegna aukinna framlaga til Fæðingarorlofssjóðs vegna aukins fjölda fæddra barna auk áhrifa af lengingu orlofsins í tólf mánuði og hækkunar hámarksgreiðslna.
Af auknum framlögum til annarra málaflokka má m.a. nefna að 900 millj. kr. verða lagðar í að innleiða nýja menntastefnu. Þá verður 200 milljóna kr. varanlegri aukningu veitt til aðgerða gegn kynferðisbrotum og því til viðbótar kemur 100 millj. kr. tímabundið framlag á árunum 2023 og 2024 svo að örfá dæmi séu nefnd.
Stærsta einstaka fjárfesting ríkisins er hins vegar áfram bygging nýs Landspítala og nema heildarframlög til framkvæmdarinnar á tíma áætlunarinnar yfir 90 milljörðum kr. Þá verður áfram stutt við grænar fjárfestingar í gegnum skattkerfið og auknum stuðningi við rannsóknir og þróun viðhaldið, en með því er stutt við nýja og hratt vaxandi stoð íslensks efnahags. Útflutningstekjur hugverkaiðnaðar eru nú áætlaðar um 10% af útflutningi, en þær hafa tvöfaldast frá árinu 2014 og aukist um 50% frá 2018. Ísland mælist nú í 17. sæti af 132 þjóðum hvað varðar nýsköpunarvirkni samkvæmt WIPO, global innovation index, og hefur hækkað úr 23. sæti á fjórum árum. Vöxtur hugverkaiðnaðar leggst við bætta afkomu stóriðju og sjávarútvegs, en öflugt atvinnulíf er enn sem áður grundvallaratriði þegar kemur að vaxandi velferð á tímabilinu. Áfram verður lögð rík áhersla á nýtingu tæknilausna, fjarþjónustu og stafvæðingar hjá hinu opinbera, að auki við áframhaldandi sameiningu stofnana og samlegð í innkaupum og rekstri kerfa. Á vefnum Ísland.is má þegar nálgast yfir 900 þjónustuferli ríkisins, stafrænt pósthólf og fjölda sjálfsafgreiðsluumsókna o.s.frv. Þá er fjárfestingarverkefni um rafrænar þinglýsingar langt komið, en samfélagslegur ávinningur þeirra hefur verið metinn 1,2–1,7 milljarðar króna. Alls hefur áætlaður ávinningur stafvæðingar í formi hagræðingar og aukinnar skilvirkni í ríkisrekstri verið metinn tæpir 10 milljarðar kr. á ári. Gert er ráð fyrir að óbeinn ávinningur samfélagsins alls gæti numið allt að 20 milljörðum kr. af þessum verkefnum. Það er því til mikils að vinna að haldið verði áfram á sömu braut.
Virðulegi forseti. Loks vil ég nefna að í þessari fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs aukist til ársloka 2027 og verði þá 2.042 milljarðar kr. Vaxtagjöldin verða á bilinu 76–90 millj. kr. og fari hækkandi eftir því sem á tímabilið líður en stór hluti vaxtagjalda er vegna ófjármagnaðra lífeyrisskuldbindinga og verðbóta, ég vek athygli á því. Áætlað er að skuldahlutfall ríkissjóðs staðnæmist í tæplega 37%, sem er langt umfram þær væntingar sem maður leyfði sér að hafa fyrir stuttu. Það verður að segjast eins og er að skuldahlutföllin verða áfram mjög heilbrigð þrátt fyrir þetta mikla áfall. (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Ég fæ tækifæri til að taka aftur til máls hér síðar en ég læt þetta duga að sinni og legg til að áætluninni verði vísað til hv. fjárlaganefndar að umræðunni lokinni.