fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Forseti. Ég er með frekar einfalda spurningu sem er samt dálítið viðamikil í stærra samhengi. Verða byggð hjúkrunarheimili eftir árið 2024? Frekar einföld spurning, myndi maður halda. En ástæðan fyrir því að spurt er er sú að í fyrirspurnum fjárlaganefndar kom í ljós að þegar beðið var um fjárheimild til þess að byggja þau hjúkrunarheimili sem eru á áætlun eftir 2024 var því neitað af fjármálaráðuneytinu. Það þýðir að það er ekki framkvæmdafé fyrir þessum hjúkrunarheimilum þrátt fyrir að við vitum að þau verði byggð. Það er nauðsyn á því. Ef það verður ekki farið í þær lágmarksframkvæmdir þá mun það kosta samkvæmt skýrslu McKinseys, sem kom út um daginn, 9 milljarða á ári í auknu álagi vegna starfa eða rýma sem vantar. 9 milljarða vextir. Það munar um minna þar. Það að þessi fjárheimild sé ekki til staðar er einfaldlega lygi um það hver skuldastaða ríkisins er því að þessi útgjöld munu þurfa að koma til, sem breytir afkomu ríkissjóðs, sem breytir skuldastöðu ríkissjóðs. Við sjáum hérna fjármálaáætlun sem er með ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar, með þjóðarleikvang sem er inni í einhverju óráðstöfuðu framkvæmdafé, með hjúkrunarheimili sem er ekki fjárheimild fyrir. Eigum við að trúa því að skuldastaðan endi í núlli við lok þessarar fjármálaáætlunar? Ég spyr ráðherra einfaldrar spurningar: Verða byggð hjúkrunarheimili eftir árið 2024?