fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Við erum með töluvert miklar uppsafnaðar fjárheimildir, m.a. til þess að fara í verkefni eins og það sem hér er rakið. Í ljósi þess hversu hægt hefur gengið að koma fjármagni út í nákvæmlega þessum tilgangi, að byggja hjúkrunarheimili, þá væri mjög óvarlegt að þykjast geta sett einhverja ákveðna tölu eftir árið 2024 fyrir slíka uppbyggingu. Verða einhvern tímann reist eftir 2024 hjúkrunarheimili? Já, það getur vel verið. En mun það kalla á þeim tímapunkti á nýjar fjárheimildir? Ég er ekki svo viss um það. Ég ætla að vekja athygli á því að í lok síðasta árs vorum við með 10 milljarða kr. ónýttar fjárheimildir fyrir uppbyggingu Landspítalans. Við settum í lok árs 2020, ef ég man rétt í kringum 1.350 milljónir, til þess að létta á Landspítalanum, til þess að fjölga einmitt rýmum. Það kom varanlega inn í fjárlögin og var í gildi á síðasta ári og er í gildi á þessu ári. En enn eru þessir sjúklingar inni á Landspítalanum. Það hefur ekki skort fjárheimildirnar. Við erum með 2,7 milljarða kr. uppsafnaða fjárheimild til þess að fara í þá uppbyggingu. Og þegar hv. þingmaður heldur því fram að við séum að reyna að fela afkomu eða gera lítið úr skuldastöðunni eins og hún verður eftir 2024 þá held ég að hann þurfi aðeins að gá betur eftir því hversu mikið við eigum af fjárheimildum. Við verðum að skoða með sitthvorum gleraugunum afkomu ríkissjóðs á þjóðhagsgrunni, eins og við horfum á þetta núna, og síðan hins vegar á rekstrargrunninum vegna þess að það hefur oft á tíðum verið þannig hér í þinginu að við höfum verið uppi með stór áform um að framkvæma mikið og það þarf strax að fara og gera mikið, en síðan kemur bara í ljós að ýmist eru atvinnutækin ekki til staðar eða tilhlaupið að framkvæmdastiginu er lengra en við erum að gera ráð fyrir. Þess vegna verður ákveðið misvægi (Forseti hringir.) á milli þessara tveggja þátta og ég myndi ekki hafa áhyggjur af því að það muni stranda á fjármögnun þegar að því kemur sem hv. þingmaður er að tala um.