fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Hæstv. fjármálaráðherra ræddi hér áðan um að kjarasamningar réðu úrslitum í haust hvað varðar verðbólguna. Mig langaði þess vegna til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvernig hann sér fyrir sér að samtalið verði á vinnumarkaði í haust, kannski í ljósi þess að þessi fjármálaáætlun sem hér er rædd býður ekki upp á nein ný úrræði til að bregðast við undirliggjandi vanda verðbólgunnar, húsnæðismálunum. Það er nefnilega svo að það virðist vera samdráttur í framlagi til húsnæðismála á þessu kjörtímabili. Strax á næsta ári hrynja stofnframlög til uppbyggingar nýrra íbúða. Það er talað um 500 millj. kr. aukningu vegna húsaleigubóta sem fyrst og fremst virðist vera kerfislægur vöxtur vegna þess að leigjendum fjölgar. Þetta er þrátt fyrir athugasemdir og í raun loforð hæstv. innviðaráðherra og hæstv. forsætisráðherra um að hér yrði gripið inn í. Ég spyr því: Hvernig stendur á því að stórir málaflokkar, stórir pólitískir málaflokkar sem hæstv. ráðherrar í sömu ríkisstjórn og hæstv. fjármálaráðherra hafa talað fyrir breytingum á og talað fyrir að meira fjármagn yrði lagt í, virðast standa óhreyfðir og sumir rýrna?