152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:08]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég geri ekki ágreining um það að ástandið á húsnæðismarkaði er nokkuð alvarlegt og við höfum talað um að þar hafi framboðshliðin brostið. Ef við gerum upp undanfarin tíu ár af aðgerðum þeirra ríkisstjórna sem ég hef setið í og veltum því fyrir okkur hvaða árangri við höfum náð heilt yfir til að létta á skuldastöðu heimilanna og til þess að tryggja lægri greiðslubyrði, þá held ég að nýútkomin lífskjararannsókn Hagstofunnar tali sínu máli. Hún var ekki beint glæsileg staðan þegar við vorum að fást við vangetu stjórnar sem stjórnaði hér á árunum 2009–2013 til þess einmitt að horfast í augu við það að skuldavandi heimilanna þá var orðinn efnahagslegt vandamál sem við réðumst gegn með mjög markvissum aðgerðum. Nú er sagt að vandi heimilanna sé nú þegar orðinn gríðarlegur eða verði það eftir einhverja mánuði. Það sem ríkisstjórnin hefur gert er að koma aftur á samstarfshópi um aðgerðir í húsnæðismálum. Hann er tekinn til starfa. Hann er leiddur af sama fólki og gerði það fyrir lífskjarasamningana 2019. Við höfum boðað að okkar vilji standi til þess að eiga gott samráð við sveitarfélögin til þess að bregðast við á framboðshlið. Ég hef áhyggjur af því hversu margir sjá ekki — ég er ekki að halda því fram hér um hv. þm Kristrúnu Frostadóttur, en mér finnst það svona almennt í umræðunni, það er alltaf kallað eftir því að grípa til aðgerða sem á endanum munu ekki gera annað en að auka eftirspurn. Ég hef sömuleiðis áhyggjur af því hve illa sveitarfélögunum hefur gengið að stilla saman strengi sína, ekki síst hér á höfuðborgarsvæðinu, til að spá fyrir um þörfina og bregðast við henni, t.d. í svæðisáætlunum sínum.