152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:11]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þarf eiginlega að fá að ítreka spurningu mína vegna þess að henni var ekki svarað. Hvernig stendur á því þrátt fyrir vilyrði? Ég get bara, með leyfi forseta, vitnað í innviðaráðherra um daginn:

„Sá ráðherra er hér stendur leggur mikla áherslu á uppbyggingu félagslegs húsnæðis um allt land og hefur lagt inn tillögur í fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 um verulega aukningu fjármuna til að fjölga uppbyggingu íbúða fyrir tilstuðlan opinbers húsnæðisstuðnings …“

Það birtist ekki í þessari fjármálaáætlun. Hvernig stendur á því? Það þýðir ekkert að vera að vitna áfram í þessa samstarfshópa. Það hafa næstum því allir ráðherrar þessarar ríkisstjórnar gert það en svo birtist bara sýnin svart á hvítu í þessari fjármálaáætlun og það er engin breyting á fjármagninu þar að lútandi. Það er hins vegar alltaf hægt að finna fjármagn sem er þensluhvetjandi í hin og þessi úrræði, hvort sem við tölum um Allir vinna eða séreignarsparnaðinn sem við vitum að fór til tekjuhæstu 30% og jók verðbólgu og þrýsti upp húsnæðisverði. Ég spyr bara: Hvað varð um þá fjármagnsaukningu sem átti að verða?