fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Það er nú í fyrsta lagi þannig að þegar niður falla tímabundin framlög sem hafa verið grundvöllur að stofnframlögum þá má sjá breytingu raungerast og það verður að teljast hafa verið fyrirséð. En ég held að öðru leyti þá verðum við að svara þessu þannig að það er bara ekki tímabært að fara að setja einhverja ákveðna tölu á það hversu sterkt stjórnvöld telja rétt að stíga inn á þessu sviði. Það sem við höfum gert á undanförnum árum er að við höfum umbreytt húsnæðiskerfinu á Íslandi, bæði með hlutdeildarlánum og hins vegar með almenna íbúðakerfinu. Ég held samt sem áður að það hafi ekkert eitt skipt heimilin og húsnæðismarkaðinn jafn miklu máli og það að skapa hér skilyrði fyrir lægri vexti. Ef það er eitthvað eitt sem á að standa upp úr í kjaralotunni í haust þá held ég að það ætti að vera það að taka höndum saman við stjórnvöld sem með þessari áætlun sýna í verki vilja til að draga úr þenslunni og þannig ætti kjaralotan að snúast um einmitt þetta.