fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun til næstu fimm ára og verðum væntanlega að gera það núna næstu þrjá dagana, í það minnsta áður en þessari áætlun verði vísað í nefnd. Ég á stundum erfitt með að ná utan um þessa hluti. Ég er búinn að heyra ítrekað haft eftir fjármála- og efnahagsráðherra um mikinn afkomubata heimilanna, að þau hafi aldrei haft það betra. Síðan sagði hæstv. ráðherra að vanskil hefðu aldrei verið lægri. En þegar maður skoðar þetta — tökum bara dæmi um einstakling sem leigir húsnæði fyrir 200.000 kr. á mánuði og bara við það að það hækki í takti við verðbólguna upp á einhver 6–7%, þá er það bara komið í 14.000 kr. hækkun. Þessi 25.000 kall sem hann fékk í launabreytingu — hann borgar af honum skatta, hann borgar af honum félagsgjald og framlag í lífeyrissjóð og ef viðkomandi er í sæmilegu standi þá setur hann kannski 500 kallinn í séreignarsjóð. Þannig að eftir stendur ekki nema rúmlega 13.000 kall. En húsaleigan er kannski búin að hækka um það, 13.000–15.000 kall. Og þá spyr maður: Í hverju felst þessi afkomubati? Vegna þess að síðan á viðkomandi eftir að greiða fyrir hækkandi eldsneytisverð, hann á eftir að borga fyrir hækkandi matvælaverð. Þetta er bara það sem sá hópur sem er á strípuðum töxtum á vinnumarkaði er að glíma við. Að horfa á eitthvert meðaltal einhvers staðar uppi í rjáfri þegar meðallaun á Íslandi eru á milli 700.000 og 800.000 kr. þá er þessi hópur í vanda. Og að tala um að það sé mikill afkomubati á þessum heimilum finnst mér bara vera út í hött. Ég verð bara að biðja um skýringar á þessum afkomubata sem verið er að tala um hér.