fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég myndi hvetja hv. þingmann til að skoða tekjusöguna og skoða lífshlaupið. Þá mun hann sjá að ef við skoðum aftur til ársins 1991 þá finnum við á Íslandi líklega einhvern mesta félagslegan hreyfanleika í heimi, sem segir okkur það að fólk í þeirri stöðu sem hv. þingmaður er hér að fjalla um, á meiri möguleika á Íslandi til að brjótast út úr þeirri stöðu en í öðrum samfélögum. Þetta er líka grunnurinn að því að við mælumst ítrekað það þjóðfélag sem tryggir mestan jöfnuð í lífskjörum.
Ef við veltum nánar fyrir okkur stöðu þeirra sem eru með minnstar tekjurnar og húsnæðisöryggi þeirra þá verð ég að vísa til þess að við höfum hér verið að gera umbætur á húsnæðismarkaðnum með almenna íbúðakerfinu, með stofnframlögum og á leigumarkaðinum með húsnæðisbótum. Þetta ber allt að sama brunni. Við getum ekki leyst þessi vandamál með því að hella frekari olíu á eldinn. Við verðum að tryggja að framboðshliðin verði í lagi og hér sé haldið þannig á stjórn efnahagsmála, í samvinnu við vinnumarkaðinn, að við stuðlum að stöðugleika og lægra vaxtaumhverfi. Það er eitt og sér langstærsta hagsmunamálið eins og ég horfi á það. Við höfum mikið rætt hérna um vaxtahækkanir að undanförnu, skiljanlega. Þá getur þrengt að mörgum og það þrengir kannski fyrst að tekjulægri heimilum þegar vextir hækka og verðbólga gerir vart við sig. En það fer dálítið forgörðum í þeirri umræðu að vaxtastigið er samt bara eitt það besta, ef við horfum aðeins yfir lengri tímabil. Við erum aftur komin á vaxtastig sem var sambærilegt því sem var fyrir tveimur til þremur árum síðan, sem þó var þá eitt það lægsta sem við höfðum séð í 20 ár. Ef það er einhver einn lærdómur sem við getum dregið af þessu er hann sá að við getum vel gert þetta ef við stöndum saman og erum sammála um megináherslur.