152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:18]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það rifjaðist upp fyrir mér slagorð Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda síðustu kosninga um land tækifæranna, minnugur Bandaríkjanna, sem eiga að vera land tækifæranna, þar sem ójöfnuður er hvað mestur í heiminum. Síðan er verið að minnast á húsnæðisframlögin og stöðu húsnæðismála. Ég þekki það nú sjálfur, eftir að hafa tekið þátt í kjarasamningsgerð í tvo áratugi, að þegar við sömdum um stofnframlögin á árinu 2015, sem var nú upphafið að lögunum um almennar íbúðir, þá var þar samið um 2.300 stofnframlög sem áttu að skiptast niður á fjögur ár. Það hefðu þá verið byggðar 575 íbúðir á ári, en niðurstaðan varð aldrei sú. En ef við skoðum þetta framlag sem er inni í áætluninni núna þá sýnist mér nú, ef ég reikna þetta niður á 50 millj. kr. kostnað á íbúð, að þetta séu einhver 200 stofnframlög á hvert ár. Það er verið að minnka þetta úr 400–500 á ári niður í 200. Maður spyr sig: Er þetta ásættanlegt?