fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ef hv. þingmaður myndi ganga á fund þeirra sem helst hafa viljað reisa slíkar íbúðir þá myndi mæta honum fólk sem segði honum þá sögu að sveitarfélögin eru einfaldlega ekki tilbúin með byggingarhæfar lóðir, því miður. Það hefur ekki staðið á fjármögnun. Þetta er hluti af þessum framboðsvanda sem við erum alltaf að ræða um. Það er einhvers staðar í framtíðinni sem menn hafa gert ráð fyrir því að lóðir verði tilbúnar og gatnagerð kláruð o.s.frv., en byggingarhæfar lóðir undir þessi íbúðaform hafa ekki verið til ráðstöfunar. Það er slæmt. Og ég verð að segja að bara það að það skuli hafa tekið bráðum tíu ár að koma saman byggingargáttinni, sem við vorum að ræða hérna, ef ég man rétt, á árinu 2012, er bara ekki nógu gott. Þetta er ekki nógu gott. Við virðumst ekki geta séð nema nokkur hundruð metra fram veginn en ætlum þó að fara langa leið.