fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir þessa spurningu og ég er sammála. Það er mjög sérstakt að verkefni, sem eru flutt yfir til sveitarfélaganna og eru lögbundin, séu fjármögnuð með sjóði sem fylgir hagsveiflunni. Það er ekkert hægt að sleppa því að sinna lögbundinni þjónustu þrátt fyrir að hagvöxtur sé minni en hann var. Sveitarfélögin eru í allt annarri stöðu en ríkissjóður þegar kemur að því að taka þátt í hagsveiflunni vegna þess að ríkið er hagstjórnaraðili, sveitarfélögin eru það ekki. Ríkið getur tekið lán á hagstæðum vöxtum, er í miklu, hvað á ég að segja, sértækari stöðu til þess að beita sér gagngert í svoleiðis aðstæðum en sveitarfélögin eru það ekki. Það er ekkert talað um þetta í þessari fjármálaáætlun. En mig langar líka að minnast á það sem hv. þingmaður var að ræða varðandi stöðuna í Reykjavík. Það er mjög sérstakt að hér erum við með ríkisstjórn sem talar ítrekað um stöðu barna og hvergi á Íslandi eru fleiri börn sem eru með erlendan bakgrunn og þurfa aðstoð til að mynda við að koma sér betur inn í skólakerfið, til að koma í veg fyrir mismunun, til að styðja við farsæld þessara barna, en í Reykjavík. Út af úreltri skipan fjármála í tengslum við jöfnunarsjóð og líkan sem var stillt á núll á sínum tíma þá fæst ekkert fjármagn til Reykjavíkur fyrir íslenskuverin. Þetta er bara mjög óeðlilegt í þessu samhengi og það sem er enn þá óeðlilegra er að enn og aftur er ríkissjóður að egna sveitarfélögin, sveitarstjórnarstigið, einhvern veginn upp á móti hvert öðru. Núna eru öll hin sveitarfélögin hrædd um að ef reykvísku börnin sem þurfa þessa aðstoð fái aðstoð, þá muni einhver annar tapa, í staðinn fyrir að í sameiningu myndu þau bara sækja sinn rétt á ríkissjóð.