fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég átti samtal við embættismann fyrir ekki löngu sem hafði aðkomu að því á sínum tíma að starfa við fjárlagagerð fyrir Evrópusambandið. Hann sagði að það hefði verið alveg gríðarlega erfitt mál og flókið vegna þess að þegar málið kom til þingsins kom það í hendur stjórnmálamanna sem höfðu ekkert með tekjuhlið mála að gera heldur töluðu bara um útgjöldin. Fjárlög Evrópusambandsins fjalla bara um útgjöld og dreifingu útgjalda. Þetta samtal kom mér í hug þegar ég hlustaði á hv. þingmann sem getur bara ekki fundið það málefni í fjármálaáætlun sem ekki þurfi að eyða meiri peningum í. Það var sama hvar borið var niður. Það er farið frá fötluðum yfir í börn af erlendum uppruna hér í Reykjavíkurborg — það er alltaf öllu hafnað sem snýr að Reykjavíkurborg, menn sjá ekki að sveitarfélögin hafi nokkru hlutverki að gegna við að tryggja íbúðaframboð. Það eru heilbrigðismál, það eru félagsmál, það eru húsnæðismál. Það eru önnur verkefni, bygging hjúkrunarheimila.
Hversu marga milljarða sér hv. þingmaður fyrir sér að leggja til að við bætum við tæplega 130 milljarða halla ríkissjóðs? Ég vona að einhver muni vakna aðeins hér í umræðunni í dag og veita því athygli að við erum með á annað hundrað milljarða í halla. Við erum með halla til að styðja opinbera þjónustu, til þess að gera áfram vel í opinberri þjónustu. Við erum á mörgum sviðum framúrskarandi. Við veitum góða heilbrigðisþjónustu. Við erum með þéttriðið félagslegt öryggisnet, betra en víðast annars staðar. Vildum við gjarnan gera meira? Já, já. En það þýðir ekkert að koma hér upp í þingsal og segja: Ég yfirbýð í félagsmálum, ég yfirbýð í húsnæðismálum og segja síðan í hinu orðinu að fólk standi fyrir efnahagslegan stöðugleika. Það verður að vera eitthvert samhengi í hlutunum. Við getum líka farið þá leið að leggja bara fram útgjaldaáætlun eins og gert er í Evrópusambandinu. Hér er útgjaldaáætlun ríkissjóðs, gleymum bara tekjuhliðinni og afkomunni.