fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta andsvar og velti bara fyrir mér hverju hæstv. ríkisstjórn var þá að lýsa yfir í stjórnarsáttmála. Ef hæstv. fjármálaráðherra líður svona ótrúlega illa með öll þessi útgjöld, af hverju var það þá ekki bara tekið fram í stjórnarsáttmála að framreikna ætti þetta allt saman? Ég er einfaldlega að vitna í loforð sem reglulega falla í þessum sal og standast ekki í fjármálaáætlun. Það er ekki hægt að fara í kosningar sem jafnaðarmenn og haga sér svo öðruvísi nokkrum vikum seinna.
Maður spyr líka um eðli útgjaldanna og þetta veit ég að hæstv. fjármálaráðherra er fullkomlega meðvitaður um. Þriðjungur af útgjöldum hins opinbera er launakostnaður. Við samþykktum fjáraukalög fyrir jól upp á, held ég, hátt í 15 milljarða kr. vegna vaxtabóta, vegna þess að verðbólgan rauk af stað. Samfylkingin, minn flokkur, talar hér fyrir útgjöldum sem koma í veg fyrir þetta verðbólgulaunaskrið. Við skiljum mikilvægi virkrar velferðarstjórnar sem felst í því að ríkið vinnur með vinnumarkaðnum og atvinnurekendum til að koma í veg fyrir að hlutirnir hlaupi svona frá sér. Þetta hafa norrænu velferðarlöndin í kringum okkur skilið en þetta virkar ekki vel í raunveruleikanum vegna þess að eitt er sagt á yfirborðinu og annað aktúelt gert í fjármálaráðuneytinu og það er vegna þess að það er ekki skilningur á raunverulegri velferðarstjórnun.
Við höfum talað hér um heilbrigðiskerfið. Í ræðu minni áðan vitnaði ég í ræðu um 9 milljarða kr. sparnað sem felst í því að nýta úrræðið betur. Það kostar að fjárfesta í nýju kerfi. Það er ekki bara hægt að erfa gömul velferðarkerfi sem hafa legið niðri í mörg ár og halda að hægt sé að uppfæra þau án einskiptiskostnaðar í nokkur ár. Það er verið að kalla eftir því að þeim niðurskurði sem ráðist var í hér eftir hrun, sem dró úr kerfunum okkar, verði mætt svo að við getum dregið úr kostnaði síðar meir.