fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Þetta er alltaf sama sagan. Það er aldrei nóg að gert alveg eins og hv. þingmaður sagði hér í miðjum heimsfaraldrinum og Samfylkingin reyndar lagði til í þinginu á þeim tíma, að það þyrfti að taka 100 milljörðum hærra lán til að gera nóg. Hvernig stenst það skoðun í dag? (Gripið fram í.) Við gerðum það einmitt ekki. (Gripið fram í: Jú.) Við stóðum við áætlanir okkar og við uppfærðum þær í samræmi við stöðuna hverju sinni og afkoma ríkissjóðs er langtum betri en spáð hafði verið á þeim tíma. Á endanum snýst þetta í sjálfu sér bara um lífskjör og í þessari fjármálaáætlun er það dregið fram, t.d. varðandi húsnæðismarkaðinn sem hvað mestu máli skiptir fyrir fólk. Má ég t.d. benda á töflurnar um það hvernig vaxtakostnaður sem hlutfall af ráðstöfunartekjum fer lækkandi og hefur farið lækkandi, ekki bara hjá þeim sem eru í efstu lögunum, eins og hv. þingmaður hefur verið að ræða í samhengi við úttekt á séreignarsparnaði, heldur hjá öllum tekjutíundum. Þá hefur gengið betur á húsnæðismarkaði á undanförnum árum og ekki bara aðeins betur heldur miklu betur ár frá ári. Það er þennan árangur sem við erum að tala um að verja. Nú stöndum við sem sagt í þeim sporum að lífskjör hafa batnað ár frá ári. Ég verð að leyfa mér að segja að lífskjararannsókn Hagstofunnar hefur farið fram úr væntingum mínum um stöðuna á síðasta ári og enn heyrum við þetta sama. Og ég fékk ekki svar við spurningunni sem var: Hversu mikinn halla, meira en rúmlega 120 milljarða halla, er hv. þingmaður að tala um? Ég get ekki betur heyrt en að það vanti tugi milljarða í alla málaflokka og það sé leiðin fram á við að auka umsvif ríkisins, ríkisfjármálanna, mjög verulega.