fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin kynnir hér fjármálaáætlun áranna 2023–2027. Rauði þráðurinn er þessi: Bjartari efnahagshorfur, mikill afkomubati og betri og hagkvæmari þjónusta.
Ríkisstjórnarsamstarfið hefur gengið vel á erfiðum tímum. Þrátt fyrir að fjármál ríkisins hafi þurft að þola þung högg á tímum Covid-19 hefur traustur grunnur verið byggður hér á landi. Fyrsta fjármálaáætlun þessa kjörtímabils byggir á þeim grunni og í henni birtist skýr sýn ríkisstjórnarinnar um efnahagslegar framfarir og kraftmikla verðmætasköpun í framsæknu, samkeppnishæfu og sjálfbæru samfélagi.
Það er vissulega mikið um gagnrýni innan ákveðinna flokka á þingi en stöku sinnum er gott að staldra við og átta sig á því að ríkisstjórnin hefur staðið sig afar vel í erfiðum aðstæðum, að mínu mati. Nú er verkefnið að ná efnahagnum, ríkissjóði og fjárhag heimilanna aftur í sama far og fyrir faraldurinn. Við erum komin vel á leið í átt að því markmiði. Þegar það klárast ætlum við að gera enn betur og tryggja aukna velmegun innan samfélagsins alls.
Ríkið ráðstafaði ríflega 280 milljörðum kr. á árunum 2020–2022. Kröftug innspýting hins opinbera í atvinnulífið var lykillinn að áframhaldandi framleiðslu og þjónustu hér á landi. Hún hélt lífsneistanum í íslensku atvinnulífi og byggði undir umsvif til framtíðar. Ýmsar aðgerðir á borð við Hefjum störf, lokunarstyrki og viðspyrnustyrki hafa gefið góða raun. Árangurinn endurspeglast í sterkri stöðu íslenskra heimila og fyrirtækja.
Atvinnulausum fækkar ört. Í janúar 2021 var atvinnuleysið í hæstu hæðum, um 11,6%. Síðan þá hefur það dregist saman hratt og er nú 5,2%. Þetta er árangur sem við megum ekki gleyma, en atvinnuleysið er komið nú á svipaðar slóðir og fyrir faraldurinn. Núverandi spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi lækki enn hraðar en áður var talið og verði um 4% á tíma fjármálaáætlunarinnar.
Að auki hefur samdráttur í hagkerfinu verið minni en upphaflega var gert ráð fyrir. Það sama má segja um fjárhagsstöðu heimilanna og margra fyrirtækja. Kaupmáttur heimila hefur aldrei verið meiri og hefur vaxið meira en gert var ráð fyrir ásamt því að gjaldþrotum hefur ekki fjölgað í þeim mæli sem búast mátti við ef horft var til upphaflegrar sviðsmyndar. Þá hefur hallarekstur og skuldasöfnun hins opinbera ekki aukist í þeim mæli sem reiknað hafði verið með. Það er góðs viti og gefur okkur sterkan grunn til næstu ára.
Verðbólga hefur hækkað hér á landi sem eru aðstæður sem bregðast þarf við. Verðbólga mælist 5,7% í dag. Hún er minni hér á landi en í mörgum samanburðarríkjum. Sem dæmi má nefna að verðbólga mælist nú 6,6% innan Evrópusambandsins. Gert er ráð fyrir að verðbólga taki að lækka með ábyrgri hagstjórn á sviði ríkisfjármála, peningamála og á vinnumarkaði en sú stefna sem birtist í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar stuðlar einmitt að því.
Undanfarið hefur mikið verið fjallað um verðbólguhorfur og kallað hefur verið eftir sérstökum aðgerðum hennar vegna. Við þetta þarf að rýna í ástæður verðbólgunnar. Slíkar aðgerðir eru ekki alltaf vænlegar til árangurs. Það er líklegra til að hafa jákvæð efnahagsleg og samfélagsleg áhrif. Stundum geta slíkar aðgerðir leitt til öfugra áhrifa. Það viljum við ekki. Sérfræðingar hafa lagt til að sérstakar ráðstafanir til að auðvelda heimilum að takast á við háa verðbólgu þyrftu að beinast að afmörkuðum hópi fólks og vera fullfjármagnaðar með sköttum eða forgangsröðun útgjalda. Annars gætu slíkar ráðstafanir aukið verðbólguþrýstinginn enn meira og leitt til hærri vaxta.
Það er staðreynd að miklar verðhækkanir erlendis hafa töluverð áhrif á verðbólgu hér á landi. Engar innlendar aðgerðir koma í veg fyrir erlendar verðhækkanir. Hins vegar er innlendur verðbólguþrýstingur innfluttum verðbólguþrýstingi yfirsterkari og hefur verið um langt skeið. Það er sá þáttur sem hefur drifið verðbólguna áfram síðustu 12 mánuði. Öll ríki heims glíma við verðbólgu í dag, sem er skiljanlegt miðað við aðstæður síðustu ára. Ekkert ríki gat horft fram hjá faraldrinum og allir þurftu að bregðast við. Þar var Ísland engin undantekning, eins og við vitum.
Víðs vegar á Vesturlöndum er verðbólga há, sem vissulega er afleiðing af nauðsynlegu viðbragði hagstjórnarinnar við heimsfaraldrinum með það að markmiði að viðhalda kaupmætti heimilanna og lífsneista atvinnulífsins. Hér á landi tók ríkisstjórnin þá ákvörðun að fara í víðtækar aðgerðir sem tækju mið af alvarleika faraldursins. Í stóru myndinni var ákvörðunin að gera meira en minna. Flestir voru sammála um að hið opinbera færi þá leið en hér á þingi var aðallega lagt til að menn gengju enn lengra. Miðað við þann árangur og þær framtíðarspár sem liggja fyrir er það mitt mat að sú ákvörðun hafi verið rétt. Efnahagslífið hefur tekið hraðar við sér en upphaflega var reiknað með en óumflýjanlegur fylgifiskur þess er að verðbólga hækkar. Til að vinna bug á henni þarf ósköp einfaldlega að draga aftur úr almennum stuðningi við hagkerfið og leggjast peningastefnan og ríkisfjármálastefnan aftur á sömu sveif.
En horfur eru jákvæðar og við þær aðstæður getum við horft til baka og dregið lærdóm af þeim afleiðingum faraldursins. Hið fyrsta sem við þurfum að halda til haga er þetta: Umfangsmestu efnahagsaðgerðir sögunnar vegna heimsfaraldursins grundvölluðust á sterkri stöðu ríkissjóðs og skiluðu ótvíræðum árangri. Eins sjáum við að ráðast þarf í kerfisbreytingar sem miða að því að draga úr sveiflum og auka sveigjanleika og viðnámsþrótt samfélagsins gagnvart þeim.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sveiflur verða í efnahagslífinu og verður líklega ekki í það síðasta. Við þurfum að tryggja sterkan grundvöll heimilanna sem tryggir aukið jafnvægi á sveiflutímum frekar en að neyðast til að ráðast í sérstakar aðgerðir í hvert sinn sem slíkar blikur eru mögulega á lofti. Ríkisstjórnin hefur nú þegar farið í slíkar aðgerðir og ég fagna þeirri framtíðarsýn hennar að horfa fram á veginn. Með þessu er ég þó ekki að segja að aldrei þurfi að ráðast í sértæk úrræði þegar aðstæður þarfnast þess. Sem dæmi má nefna þróun á meginlandi Evrópu varðandi kyndingar- og samgönguútgjöld en þau hafa hækkað töluvert í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu og efnahagsaðgerða Vesturlanda vegna hennar. Þetta eru dæmi um aðstæður sem krefjast sérstakra úrræða en blessunarlega hafa áhrifin hér á landi verið minni háttar miðað við önnur Evrópuríki. Samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs hefur hækkun orku- og olíuverðs hækkað útgjöld heimilanna um 1,2% á síðustu 12 mánuðum. Á sama tíma er fjárhagsstaða heimilanna sterk og kaupmáttur enn að vaxa, öfugt við þá þróun sem á sér stað erlendis.
Laun hafa hækkað hratt síðastliðin ár og mikilvægt að enginn verði skilinn eftir í þeirri þróun. Það myndi hafa alvarlegar afleiðingar til frambúðar. Nú þegar hefur verið ráðist í breytingar á skattkerfinu þess efnis að lækka skattbyrðina og jaðarskatta á þá tekjulægstu. Jöfnunarhlutverk skattkerfisins hefur verið styrkt enn frekar í þágu tekjulægstu hópanna ásamt því að bætur á vegum almannatrygginga taka nú mið af launaþróun samfélagsins. Þetta er liður í aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur farið í til þess að auka framtíðarvægi heimilanna svo þörf á sértækum aðgerðum verði minni á næstu árum ef efnahagskerfið tekur sveiflu.
Einnig hefur verið talað um að aðgerðir stjórnvalda séu þensluhvetjandi. Þeim röddum svara ég játandi. Aðgerðunum var ætlað að vera þensluhvetjandi. Markmiðin voru aukinn kaupmáttur, lækkað atvinnuleysi og betri horfur atvinnulífsins. Þessu höfum við náð hraðar en áætlað var. Við náðum markmiðum okkar og við þurfum að halda áfram á þeirri braut sem við höfum markað og kemur fram í þeirri fjármálaáætlun sem nú hefur verið lögð fram.