152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[15:57]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að beina sjónum að heilbrigðismálum. Þar eru gríðarlegar áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Ef við tökum bara sjúkrahúsþjónustuna þá hefur þróunin þar verið sú í tíð síðustu ríkisstjórnar að sjúkrarýmum hefur fækkað gríðarlega miðað við íbúafjölda um leið og þjóðin hefur haldið áfram að eldast og rúmanýting hefur verið um og yfir 100% á sjúkrahúsunum. Raunframlög til Landspítala miðað við íbúafjölda hafa staðið í stað og uppbygging hjúkrunarrýma setið á hakanum með þeim afleiðingum að gríðarlegur fjöldi fólks á hverjum tíma með gilt heilsu- og færnimat situr fastur á Landspítalanum, hátæknisjúkrahúsi. Hvað með Sjúkrahúsið á Akureyri? Jú, þar blasir við gríðarlegur rekstrarvandi og vanfjármögnun með þeim afleiðingum að það þarf að loka barna- og unglingageðdeild í fimm vikur yfir sumartímann núna næsta sumar. Það hefur þurft að loka dag- og göngudeild geðdeildar og draga úr starfsemi almennu göngudeildarinnar og skurðstofunnar meira en áður hefur verið gert. Þetta liggur allt saman fyrir. Hvert er viðbragð ríkisstjórnarinnar? Hvernig ætla þau að bregðast við þessum risastóru áskorunum? (Forseti hringir.) Í þessari fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að rekstrarútgjöld til sjúkrahúsþjónustu á Íslandi aukist um aðeins 2 milljarða á ári. (Forseti hringir.) Allir sem hafa fylgst með fjárlagagerð og heilbrigðismálum vita að þetta er ekki upp í nös á ketti. (Forseti hringir.) Er Framsóknarflokkurinn stoltur af þessum áætlunum?

(Forseti (OH): Ég minni hv. þingmenn á að ræðutíminn er ein mínúta. )