fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni kærlega fyrir spurninguna hvort við séum stolt af heilbrigðisþjónustunni, við Framsóknarmenn. Mitt svar er einfaldlega að við erum stolt af heilbrigðisþjónustunni á Íslandi. Ég held að við eigum öll að vera stolt af heilbrigðisþjónustunni á Íslandi sem er ein sú besta sem gerist í heiminum. Getum við gert betur? Já, við getum klárlega gert betur. Og viljum við gera betur? Já, við viljum gera betur. Þetta er allt rétt sem þingmaðurinn talaði um áðan, þessar stofnanir sem hann taldi upp, hvort sem það er Landspítalinn eða Sjúkrahúsið á Akureyri eða allar þær fjölmörgu heilbrigðisstofnanir sem eru víðs vegar um landið. Við verðum að efla þær og eigum að efla þær. Þær verða að geta sinnt því hlutverki sem þeim er ætlað að sinna. (JPJ: Þá verðið þið að setja peninga í þær.) Já, það er alveg rétt, það þarf að setja fjármagn í þær. (Gripið fram í: Styður þú okkur í því?) Ég styð allar góðar tillögur sem snúa að eflingu heilbrigðiskerfisins á landinu.