fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Forseti. Hv. þingmaður spyr: Hvar annars staðar á þá að skera niður? En það er greinilega verið að skera niður í heilbrigðisþjónustunni því við vitum það, skýrslan sem við fengum í hendurnar fyrir örstuttu síðan segir okkur það sem t.d. Landspítalinn og heilbrigðiskerfið í heild sinni hafa sagt okkur í mörg ár. Ef aðstæður verða eins og þær eru uppsettar mun það þýða 9 milljarða aukinn kostnað vegna fleiri starfa og rýma sem verður þörf á af því að ekki er gripið til viðeigandi mótvægisaðgerða. Það er kostnaðurinn, vaxtakostnaðurinn við það að fara ekki í þær aðgerðir sem er bent á að sé ekki vanþörf á. Þessi fjármálaáætlun dregur upp nákvæmlega þá sviðsmynd sem býr til vandamálið sem er verið að benda á. Býr til vandamálið (Forseti hringir.) sem heilbrigðiskerfið er búið að benda á í mörg ár. Og þegar hv. þingmaður spyr: (Forseti hringir.) Hvar eigum við þá annars staðar að skera niður? þá myndi ég alla vega segja að það væri (Forseti hringir.) ekki í heilbrigðiskerfinu. Þurfum við ekki byrja á því að fjármagna þessa grunnþjónustu og spyrja okkur hvernig við getum fjármagnað hana áður en við förum að pæla í því að skera niður í heilbrigðisþjónustu?
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir þingmenn á að ræðutíminn er ein mínúta í andsvari þegar fjórir fara í andsvör.)