fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég vil bara þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur kærlega fyrir þessa spurningu vegna þess að þetta er akkúrat það sem við höfum verið að tala mikið fyrir í okkar flokki. Þessar hækkanir sem eru að verða núna, m.a. út af afurðaverði og út af hækkun á byggingarkostnaði, efni til bygginga, munu verða okkur til mikilla vandræða á næstu misserum og hækka íbúðaverð enn frekar. Við erum að sjá hækkanir í eldsneytisverði sem munu hafa áhrif á landbúnaðinn, munu hafa áhrif á sjávarútveginn og hinar ýmsu atvinnugreinar hér á landi fyrir utan að hafa gríðarlega óhagfelld áhrif fyrir íslensk heimili. Ég bara segi það alveg hér og nú að ef ástandið er með slíkum hætti þá finnst mér það koma alveg til skoðunar að ræða sértækar aðgerðir vegna þess ástands sem er uppi núna. (Forseti hringir.) Ég myndi ekki útiloka það, alls ekki, og myndi fagna slíkri umræðu til að reyna að finna hvaða leiðir við eigum í því.