152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[16:10]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Nú var Framsókn sigurvegari þessara kosninga að mörgu leyti, eins og Framsóknarmenn hafa sjálfir haldið fram, og miðað við þessa afstöðu, að það sé í rauninni hægt að taka að einhverju leyti undir með tillögum sem hér hafa komið fram um aðstoð við tekjulága vegna ástandsins, og til að mynda afstöðu formanns Framsóknarflokksins til húsnæðismála, sem eru samt ekki fjármögnuð í þessari fjármálaáætlun, þá velti ég því svolítið fyrir mér hvort flokkurinn hafi orðið undir í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. Mig grunar að það séu aðilar innan ríkisstjórnarinnar og stjórnarliðar sem styðji tillögur um að aðstoða tekjulága. Þá langar mig til að beina sér í lagi þeirri spurningu beint til hv. þingmanns: Hvað finnst hv. þingmanni um að húsnæðismálaloforð hans hæstv. ráðherra séu ekki fjármögnuð í þessari fjármálaáætlun?