152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[16:12]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur fyrir andsvarið og vil byrja á því að þakka henni kærlega fyrir að lýsa Framsóknarflokkinn sem sigurvegara síðustu kosninga hér í þessum ræðustól, það hefur nú ekki verið gert áður, miklar þakkir fyrir það. En ég tek bara undir þær áhyggjur sem hér hafa komið fram varðandi húsnæðismálin. Það er þannig málaflokkur og það er þannig verkefni að við getum ekkert skotið okkur undan því verkefni að reyna að finna leiðir og hvernig við getum við komið til móts við þessa stöðu sem uppi er núna. Varðandi það að þetta sé ekki fjármagnað í þessari fjármálaáætlun, þá verðum við bara leggjast saman á eitt um að þetta sé fjármagnað í þeirri næstu. En við þurfum að finna leiðirnar. (Forseti hringir.) Við þurfum að finna leiðirnar saman til að reyna að mæta þessu ófremdarástandi sem er á húsnæðismarkaðnum í dag og ég held að við eigum að gera það þvert á flokka.