fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni kærlega fyrir þetta. Finnst mér eðlilegt að tala um kaupmátt og meðaltöl? Það getur alveg verið fullkomlega eðlilegt að tala um kaupmátt og meðaltöl þegar það á við og það er bara ágætismælikvarði og það getur gefið okkur ágæta yfirsýn yfir heildina, hvernig staðan er heildrænt, að skoða kaupmátt og meðaltöl. Mér finnst eðlilegt og gott að það komi fram í þessari umræðu, af því að hér var áðan verið að tala um sértækar aðgerðir og ég er fylgjandi því að fara í sértækar aðgerðir gagnvart þeim hópum sem eru verst settir, að ég held að það sé mjög mikilvægt og miklu mikilvægara að fara í aðgerðir sem er beint til þeirra hópa sem mest þurfa á þeim að halda heldur en í almennar aðgerðir. (Forseti hringir.) Það held ég að sé stóra myndin. Reynum að finna út hvar þessir hópar eru og ég veit að menn eru búnir að því.