152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[16:38]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég held að þetta sé þykkasta fjármálaáætlun sem ég hef séð hingað til, en á sama tíma sú innihaldsrýrasta. Ég vil byrja á því að útskýra aðeins fyrir fólki hvað fjármálaáætlun er því að svo virðist vera sem ríkisstjórnin skilji það ekki. Við erum með lög um opinber fjármál sem útskýra hvernig fjárlagaferlið er, hvernig við eigum að haga þessu á skipulagðan hátt. Ríkisstjórn vinnur út frá í rauninni kosningaloforðum sínum annars vegar og hins vegar út frá langtímahorfum í efnahagsmálum sem er skýrsla sem er gefin út á nokkurra ára fresti. Út frá þessum staðreyndum um þróun mála til næstu áratuga, t.d. þriggja áratuga, og út frá þeim loforðum sem ríkisstjórnin gefur er gerð áætlun til næstu fimm ára, fjármálaáætlun. Hún inniheldur stefnu stjórnvalda um það hvernig á að laga hin og þessi vandamál í samfélaginu okkar. Hvernig er tekist á við húsnæðisvandann? Hvernig er tekist á við vandann í heilbrigðiskerfinu? Hvernig er tekist á við vandann í almannatryggingakerfinu? Þetta eru vandamál sem við vitum alveg að eru til staðar. Það er til greining um það, t.d. með húsnæðismarkaðinn, að það vanti 1.000 íbúðir í byggingu á öllu landinu til viðbótar við það sem er núna. Ef ríkið ætlar að taka þátt í byggingu á öllum þeim íbúðum þá kostar það um 7 milljarða í stofnframlög. En á tímabili ríkisstjórnarinnar eða í rauninni frá árinu 2016, hefur samdráttur á því málefnasviði, á húsnæðismarkaðnum, verið 12 milljarðar. Það sem er merkilegt er að í þessu plaggi eru yfirleitt markmið og mælikvarðar í öllum málefnasviðum nema í húsnæðis- og skipulagsmálum. Þar er talað um aðgengi að öruggu húsnæði o.s.frv. en það er ekkert fjallað um mælikvarða, þ.e. hvaða árangri ríkisstjórnin ætlar að ná. Það er það sem á að koma fram í fjármálaáætlun. Þar á að koma fram stefna stjórnvalda og hvaða árangri sú stefna á að ná, sérstaklega miðað við óbreytt ástand. En það er ekkert að finna hér af því að, eins og kom fram í máli hv. þm. Kristrúnar Frostadóttur, þetta er framreikningur. Þetta er tóm stefna. Það er engin stefna í þessari áætlun.

Ég er á þeirri skoðun að þessi fjármálaáætlun sé í rauninni blekking því að frá því að hún var lögð fram hefur komið í ljós að ýmsar nauðsynlegar framkvæmdir eru ekki fjármagnaðar. Framkvæmdir, sem lofað er í stjórnarsáttmála, eru ekki fjármagnaðar. Afleiðingin af þessu er að skuldastaða ríkisins eins og hún er sett fram í þessari áætlun er bara ekki rétt því að það verður farið í þessar framkvæmdir. Það er skortur á hjúkrunarheimilum þrátt fyrir að það þurfi líka að efla heimaþjónustu. Það þarf að gera hvort tveggja. Við fréttum það í fjárlaganefnd varðandi þau hjúkrunarheimili sem á að byggja hérna á næstu árum, á tíma þessarar fjármálaáætlunar, að það hefur einfaldlega ekki fengist fjárheimild til að byggja þau, þau hjúkrunarheimili sem á að fara í eftir árið 2024. Sá peningur er ekki til staðar hérna sem þýðir þá óhjákvæmilega að það þarf að sækja aukafjárheimild og það hefur áhrif á afkomu ríkisins. Það þýðir að afkoma ríkisins, miðað við það sem stuðst er við núna, verður verri en hún er sögð í þessari fjármálaáætlun. Það er einfaldlega verið að blekkja okkur. Það er verið að setja upp fjármálaáætlun á þann hátt að hún líti rosalega vel út, að afkoman batni og batni og endi nokkurn veginn í núlli. En á bak við það vantar fullt af aðgerðum sem við vitum að þarf að fjárfesta í.

Þetta er klassísk leið til að koma svona fjárlögum á fallegan hátt í gegnum þingið, af því að það gerist ítrekað að spár, sérstaklega um hagvöxt, vanspá og hagvöxturinn eða tekjurnar verða í rauninni meiri. Þannig er hægt að bæta við fjárheimildunum seinna án þess að það líti illa út. Ef það verður til aukapeningur þá er það peningur sem við nýtum í að byggja hjúkrunarheimili og afkoman verður síðan nákvæmlega eins þegar allt kemur til alls. En vandamálið við það er að það er léleg áætlanagerð. Við verðum að sjá áætlanir stjórnvalda, stefnuna sem hún ætlar að framfylgja, í fjármálaáætlun og við verðum að sjá kostnaðinn af því og við verðum að sjá ábatagreiningu af því. — Þetta er allt of stuttur tími.

Það stendur í fjármálaáætlun, með leyfi, virðulegur forseti: „Á undanförnum árum hefur verið unnið ötullega að því að bæta stöðuna á húsnæðismarkaði. Af 44 aðgerðum sem átakshópur um húsnæðismál lagði til árið 2019 hefur 27 verði lokið og 15 aðgerðir eru í vinnslu.“ Þá myndi ég vilja spyrja: Af hverju hefur ástandið þá versnað? Er það kannski vegna aðgerðanna? Hver veit? Ég veit það alla vega að aðgerðir undanfarinna ára, sem hafa lagst nær eingöngu á eftirspurnarhlið, ekki á framboðshliðina á húsnæðismarkaði, hafa drifið upp verð og þörf fólks til að taka hærri lán og skapað verðbólgu í kjölfarið, hækkun á íbúðaverði, mjög einfalt.

Það er átak sem þarf að fara í í umhverfismálum. Það er eitt stærsta verkefni samtímans en það er verið að minnka fjárheimildir í það um hálfan milljarð á þessu tímabili. Ég velti fyrir mér: Hvernig á þá að ná markmiðum ríkisstjórnarinnar um 55% samdrátt í losun? Ég hef ekki hugmynd um það þegar ég les þessa fjármálaáætlun. Það er ekkert útskýrt. Þetta á að vera stefna stjórnvalda þar sem hún útskýrir hvernig hún ætlar að ná markmiðum sínum. Ekkert.

Samgöngumálin. Það er engin heimild fyrir flýtigjöldum sem eiga að koma til þess að fjármagna borgarlínuna. Það er ekkert um það. Ég veit ekki hvað verður um þá fjármögnun.

Heilbrigðismál eru risastór málaflokkur sem er synd að hafa minna en tvær mínútur til að tala um því að það er svo margt annað sem þarf að tala um hérna. Vandinn þar er að ef við tökum byggingu nýja Landspítalans frá þá er verið að auka fjárheimildir til heilbrigðiskerfisins um 2% á ári eða svo. Það er eins og við höfum sagt, það er 1,5% í raunvöxt og svo um 800 milljónir í eitthvað útgjaldasvigrúm sem eru hin og þessi verkefni til þess að bæta hitt og þetta. Vandinn er sá að það þarf 2% bara til þess að dekka raunvöxtinn. Það er öldrun þjóðar. Það er grunnurinn sem þarf að byrja á þannig að það er enn verið að svelta heilbrigðiskerfið, aftur og aftur. Áætluð verklok nýja Landspítalans voru árið 2025 en nú eru þau lok 2026, kannski 2027. Það er aukinn kostnaður vegna seinkunar.

Almannatryggingar, samgöngur, fjárhagslegt sjálfstæði ráðherra, afglæpavæðing. Þetta er eins og ég segi, stærsta fjármálaáætlunin, þykkasta fjármálaáætlunin sem ég hef séð og sú innihaldsrýrasta sem ég hef séð. Mér finnst hlutirnir ekki vera að fara í rétta átt hvað fjármálaáætlun varðar og hver tilgangur hennar á að vera. Ég sé t.d. enga stjórnarþingmenn vera viljuga til þess að koma hérna í umræður við stjórnarandstöðuna. Jú, þeir eru nokkrir með ræður en þeir eru ekki að koma í andsvör og spyrja nánar út í gagnrýni stjórnarandstöðunnar. Hæstv. fjármálaráðherra mætir hérna eftir framsöguræðu sína, fer í andsvör við fyrsta ræðumann og hverfur síðan úr sal. Það eru fleiri sjónarmið en bara þau sem fyrsti ræðumaður hafði fram að færa. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson var t.d. með mjög mikilvæg sjónarmið. Ég myndi vilja fara yfir almannatryggingarnar því að þar vantar gríðarlega mikið, verðbólga ársins komin í 5,9% sem er vel umfram þau 3,3% sem var gert ráð fyrir á þessu ári. Það mun hafa gríðarleg áhrif og jafnvel bara sprengja fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Það er staðan sem við erum í og svörin er ekki að finna hér.