fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnar sem nú situr þá er kafli um efnahags- og ríkisfjármál. Ég er nú einn af þeim sem er nýr á þingi og hef tekið sæti í fjárlaganefnd og er að læra. Sá sem talaði hér, hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, er reynslubolti í nefndarstarfinu og þekkir kannski það sem hefur verið að gerast í gegnum tíðina þar. Í stjórnarsáttmálanum er talað um að það verði forgangsmál ríkisstjórnarinnar að stuðla áfram að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika á kjörtímabilinu. Síðan segir:
„Ríkisstjórnin mun leggja sitt af mörkum til að stuðla að umhverfi lágra vaxta, hóflegrar verðbólgu og góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins til að stuðla að nauðsynlegu samspili þessara þátta.“
Það vefst svolítið fyrir mér að skilja þetta, hvaða aðferðum er verið að beita til þessa við aðild að þessum félagslega stöðugleika þegar við sjáum tilfærslukerfin svelt. Það er lítið samráð við verkalýðshreyfinguna í aðdraganda kjarasamninga. Við sjáum verðbólguna æða áfram og vexti hækka þannig að ég næ ekki alveg utan um það í stjórnarsáttmálanum, að það eigi áfram að stuðla að hinum svokallaða efnahagslega stöðugleika eða félagslega stöðugleika, sem ég hef í raun og veru aldrei upplifað sem íbúi þessa lands.