fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Það eru kunnuglegir talpunktar sem við heyrum hér í dag. Fjármálaráðherra málaði stjórnarandstöðuna upp áðan eins og svolítið vanstillt fólk sem vildi bara auka útgjöld miklu meira, alveg sama hvað. Dauði og djöfull, segir svo formaður fjárlaganefndar að sé boðskapur okkar hérna. En hér skiptir samhengi hlutanna miklu máli. Í fyrsta lagi þá rýnum við þessa fjármálaáætlun með hliðsjón af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og þeirra loforða sem þar eru gefin, loforða sem flokkarnir gáfu líka í kosningabaráttu sinni sem snerist mikið um félagslega fjárfestingu o.s.frv. Í öðru lagi vil ég draga fram staðreynd sem kemur fram á bls. 36 í greinargerð fjármálaáætlunar:
„Samneysla hins opinbera mun vaxa árlega um að meðaltali 1% að raunvirði á tímabilinu. Er það lítið í sögulegum samanburði en samneysla hefur vaxið um að meðaltali 2% árlega það sem af er 21. öldinni. “
Við erum að tala um á þessu tímabili sögulegt útgjaldaaðhald. Það er sem sagt verið að draga úr umfangi almannaþjónustunnar og umfangi velferðarkerfisins í hagkerfinu. Þetta er bara staðreynd. Þá er alltaf sagt: Við erum búin að auka útgjöld svo mikið á undanförnum árum. Og í þetta fara nú fyrstu tugir blaðsíðna í áætluninni, að lýsa því hvað ríkisstjórnin hafi aukið mikið útgjöld á undanförnum árum. En sú útgjaldaaukning breytir engu fyrir barnið sem er á biðlistanum í dag og á næsta ári og á þarnæsta ári og hjúkrunarfræðinginn sem þarf að hlaupa hraðar og hraðar vegna fjársveltistefnunnar sem verið er að boða í þessari áætlun næstu árin.(Forseti hringir.)
Ég hlýt því að spyrja hv. formann fjárlaganefndar: Er hún stolt af (Forseti hringir.) þeirri stöðnun sem birtist í þessum stóru útgjaldaflokkum? (Forseti hringir.) Er hún stolt af þessari fjármálaáætlun og þessari fjársveltistefnu?