152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[17:39]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Frú forseti. Við sjáum nú fram á vaxandi verðbólgu hér á landi næstu mánuði a.m.k. og því er ljóst að forsendur fjármálaáætlunar fyrir árin 2023–2027 eru brostnar nú þegar, bæði launa- og verðlagsforsendur. Skuldir hins opinbera hafa vaxið mikið í kórónuveirufaraldrinum. Skuldir heimilanna sömuleiðis. Hreinn vaxtakostnaður ríkissjóðs er núna yfir 80 milljarðar á ári og hefur aldrei verið hærri. Í fjármálaáætluninni er talað um að stöðvun skuldasöfnunar sé í forgrunni við stefnumörkun ríkisstjórnarinnar. Við sjáum ekki skýr merki um það í þessari fjármálaáætlun eða þeirri fjármálastefnu sem samþykkt var fyrir skemmstu. Raunin er að skuldasöfnunin mun halda áfram út kjörtímabil þessarar ríkisstjórnar og vera á borði þeirra næstu að vinna úr. Það er rétt að minna á að rekstur ríkissjóðs var þegar í járnum áður en Covid skall á með falli flugfélags, stórauknu atvinnuleysi og minni hagvexti. Ríkisstjórnin kaus þá að stinga höfðinu í sandinn og var fyrir vikið verr búin fyrir áföllin sem síðar komu.

Í þessari áætlun er gert ráð fyrir að tekjur vaxi langt umfram útgjöld. Það er verið að draga saman á mörgum sviðum sem er miður. Ekki er að sjá að neinar aðgerðir séu í farvatninu til að bregðast við aukinni verðbólgu sem er farin að hafa veruleg neikvæð áhrif á heimili landsins sem mörg hver eru mikið skuldsett og þurfa að takast á við aukna greiðslubyrði lána og hækkandi matar- og eldsneytisverð. Þetta á ekki síst við um ungar fjölskyldur sem treystu sér til að taka óverðtryggt lán þegar vextir voru sem lægstir en sitja nú uppi með afborgun af húsnæðisláninu sem hefur hækkað um tugi þúsunda á mánuði án þess að laun þeirra hafi tekið einhverjum breytingum. Þess vegna er kaldranalegt að lesa um það í fjölmiðlum, haft eftir fjármálaráðherra, að horfur í ríkisrekstri hafi batnað og hagur heimilanna hafi aldrei verið betri. Á sama tíma les maður um að verðbólga hafi ekki mælst meiri á öldinni. Þá er, virðulegur forseti, lagt til í fjármálaáætlun að skera niður stofnframlög til byggingar leiguíbúða fyrir tekjulága einstaklinga um 2 milljarða. Sú aðgerð er óskiljanleg þar sem nauðsynlegt er að auka framboð á húsnæði fyrir þann hóp tekjulægri einstaklinga. Þetta er sú leið sem hefur hjálpað til á framboðshliðinni sem er nauðsynlegt þegar eftirspurnin er jafn mikil og raun ber vitni. Þetta bitnar verst á þeim sem minnst mega sín. Það liggur einnig fyrir að mikil þörf er fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila um allt land og ekki hefur fengist fjármagn fyrir fram komnar óskir þar að lútandi. Það má í þessu sambandi nefna hjúkrunarheimili á Höfn og í Reykjanesbæ sem ekki hafa verið sett í gang þrátt fyrir að samningur hafi verið undirritaður milli ríkis og sveitarfélagsins í byrjun árs 2019. Óskir um byggingu tveggja hjúkrunarheimila á höfuðborgarsvæðinu, Ártúns í Reykjavík upp á 200 rými og Sunnuhlíðar í Kópavogi upp á 50 rými, liggja á borðinu. Hvorugt þessara verkefna komst inn í fjármálaáætlun og ekki er gert ráð fyrir neinum fjárfestingarheimildum til byggingar hjúkrunarheimila eftir árið 2024, sem er auðvitað ekki ásættanlegt miðað við fyrirliggjandi þörf. Þjóðin mun ekki hætta að eldast á næstu tveimur árum. Það þarf að létta álagi af Landspítala og uppbygging hjúkrunarheimila er góður kostur til þess en ekki síður að grunnþjónustan, heilsugæslan, verði efld. Það eru þjóðhagslega hagkvæmar fjárfestingar.

Í fjárlögum ársins 2022 voru að frumkvæði stjórnarandstöðu settar inn 250 milljónir til niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Þetta hefur enn ekki komið til framkvæmda og ekki er að sjá að gert sé ráð fyrir þessu í fjármálaáætlun þrátt fyrir að lög um sálfræðiþjónustu sem hluta af tryggingakerfinu hafi verið samþykkt á Alþingi 2020 að frumkvæði Viðreisnar. Hins vegar er gert ráð fyrir að framlag til geðheilbrigðismála aukist um 500 millj. kr. á ári og 100 milljónir á ári eftir það. Ég hef verulegar efasemdir um það, virðulegur forseti, að þetta nægi til að koma til móts við þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er í geðheilbrigðismálum, sérstaklega eftir heimsfaraldur.

Virðulegur forseti. Vaxtagjöld ríkissjóðs eru nú þegar einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs og þeir fjármunir væru betur nýttir í annað en að bæta upp fyrir slæma hagstjórn sem einkennist af frekari skuldasöfnun, þensluhvetjandi aðgerðum og neikvæðri heildarafkomu ríkissjóðs út tímabil fjármálaáætlunar. Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir að vaxtagjöld ásamt lífeyrisskuldbindingum hækki um tæpa 13 milljarða og fari úr 102,8 í 115,7 milljarða. Hins vegar er hætta á að vaxtagjöldin muni aukast vegna þeirrar ótryggu stöðu sem nú er uppi.

Þá langar mig, virðulegur forseti, til að minnast á stöðu sveitarfélaganna á Íslandi sem mörg hver fóru illa út úr Covid-faraldrinum. Þau vinnumarkaðsúrræði sem ráðist var í hjálpuðu hins vegar upp á og komu í veg fyrir alvarlegan skell, m.a. hjá Reykjanesbæ, sem þurfti að takast á við 25% atvinnuleysi. Hins vegar er tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga til umræðu og sér ekki fyrir endann á því. Sveitarfélögin hafa verið að taka yfir kostnaðarsama rekstrarþætti á undanförnum árum og það liggur fyrir að það fjármagn sem fylgdi með var og er naumt skammtað. Samfélagið hefur breyst og þjónustuþörf hefur aukist og nú er svo komið að sveitarfélögin telja að myndast hafi uppsafnaður halli upp á 9 milljarða vegna málaflokks fatlaðs fólks sem ekki hefur fengist bættur þó að auknir fjármunir hafi fengist í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Þau framlög þarf hins vegar að auka. Þetta snýst, virðulegur forseti, allt um forgangsröðun. Það liggur fyrir mikil fjárfestingarþörf í sveitarfélögunum við uppbyggingu innviða. Bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar hefur enn ekki verið brúað. Samt nefndi forsætisráðherra það nýverið að skoða ætti gjaldfrjálsan leikskóla. Það kostar peninga og hvernig þetta verður fjármagnað liggur ekki fyrir. Mikil fjölgun íbúa gerir það að verkum að byggja þarf upp trausta innviði á mörgum sviðum og það gerir stöðu margra sveitarfélaga mjög erfiða. Viðhaldsframkvæmdir og innviðafjárfesting hefur verið skorin niður og það mun koma í bakið á sveitarfélögunum á komandi árum. Vegna þessara breyttu aðstæðna er nauðsynlegt að fara í endurskoðun á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga til að sveitarfélögin geti sinnt skyldum sínum til frambúðar.

Ein af forsendum þessarar fjármálaáætlunar er að gerðir verði ábyrgir kjarasamningar, eins og það er orðað í þessari áætlun. Staðan er hins vegar sú að verðlagshækkanir munu ekki auðvelda kjarasamningsgerð. Þá telur verkalýðshreyfingin að ekki hafi verið staðið að fullu við ákvæði lífskjarasamnings, m.a. þegar kemur að húsnæðismálum. Í fjármálaáætlun er hins vegar gert ráð fyrir að laun hækki ekki meira en sem nemur 1–1,5% umfram vísitölu. Nánast allir kjarasamningar verða lausir á þessu ári eða í byrjun næsta árs og það liggur ekki fyrir að vinnumarkaðurinn vilji fara þá leið sem fjármálaráðherra leggur til. Fjármálaráðherra heldur því reyndar fram að hagur heimilanna hafi aldrei verið betri en það þarf ekki reyndan stærðfræðispeking til að finna það út að hagur tekjulægstu hópanna hefur versnað við þær verðlagsbreytingar sem nú eru staðreynd ásamt þeim vaxtabreytingum sem bíta svo um munar.

Þann 22. mars seldi svo Bankasýsla ríkisins 22% hlut í Íslandsbanka og fékk fyrir það rúmlega 52,6 milljarða án þess að fara í það hvernig að því var staðið, sem þarf svo sannarlega að ræða. Er rétt að ítreka nauðsyn þess að þeir fjármunir verði nýttir til uppgreiðslu skulda eða til arðbærra innviðafjárfestinga.

Liður sem kallaður er Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir vekur athygli. Inn á þennan lið fóru 21,6 milljarðar á árinu 2020 og í fjárlögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir 35,3 milljörðum. Í nýrri fjármálaáætlun er hins vegar aukið verulega við þennan lið og mun hann enda í 67,2 milljörðum árið 2027. Maður hlýtur að spyrja hvers vegna ráðherra hafi til ráðstöfunar jafn mikla fjármuni án samráðs við þingið. Hvað ræður því? Það er hægt að skilja að einhverjir fjármunir séu ætlaðir í útgjöld vegna ófyrirséðra atvika. En hver er fórnarkostnaðurinn þegar fjárfestingarskuldin í innviðum er jafn mikil og vaxtakostnaður ríkisins jafn hár? Er þetta rétt forgangsröðun á þessum tímapunkti? Er ekki fulllangt gengið í fjárheimildum sem ráðherra getur ráðstafað að eigin geðþótta?

Virðulegur forseti. Er eitthvað að marka þessa fjárhagsáætlun? Er ekki bara allt í plati? Mennta- og barnamálaráðherra lét hafa það eftir sér nýverið að menn ættu ekkert að vera að lesa of mikið í þetta þegar hann var spurður um hvers vegna ekki var að finna neitt um nýjan þjóðarleikvang í fjármálaáætlun. Innviðaráðherra sagði einnig í aðdraganda kosninga að það væri ekkert að marka þetta þar sem það væru að koma kosningar. (Forseti hringir.) Hæstv. ríkisstjórn ber að setja fjármálaáætlun, sundurliðun á markmiðum fjármálastefnu og umfjöllun um hvernig henni verði náð. Við þurfum að treysta því að það (Forseti hringir.) sem hér stendur sé rétt og endurspegli fyrirætlanir stjórnvalda. Þetta er ekki bara eitthvert plagg, þetta er áætlun sem rekstur ríkisins byggir á. (Forseti hringir.) Það er eitt að ég sé ósammála (Forseti hringir.) þeirri forgangsröðun sem kemur hér fram en annað er að ráðherrar séu það. Eigum við ekki að lesa of mikið í þetta?

(Forseti (OH): Ég vil minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann. Það auðveldar þingstörfin og tryggir jafnræði milli hv. þingmanna.)