152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[17:54]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek nú bara heils hugar undir með hv. þingmanni um allt þetta. Nýverið kynnti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að borgin ætlaði að tvöfalda lóðaframboð sitt á komandi kjörtímabili. Borgin er þar að gera sitt en ríkisstjórnin og ríkissjóður ætla greinilega að draga lappirnar samkvæmt þeirri fjármálaáætlun sem við erum að ræða hér í dag. Það er ofboðslega bagalegt. Og þegar verkalýðshreyfingin mun svara þessu, svara þessari stöðnunar- og fjársveltistefnu fjármálaáætlunarinnar með mjög ríflegum launakröfum þá verður ekki við óábyrga verkalýðshreyfingu að sakast. Þá verður það bara ríkisstjórninni að kenna. Við skulum hafa það alveg á hreinu.

Mig langar að rifja aftur upp ummæli hæstv. innviðaráðherra, með leyfi forseta:

„Sá ráðherra er hér stendur leggur mikla áherslu á uppbyggingu félagslegs húsnæðis um allt land og hefur lagt inn tillögur í fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 um verulega aukningu fjármuna til að fjölga uppbyggingu íbúða fyrir tilstuðlan opinbers húsnæðisstuðnings …“

Svo leggur fjármálaráðherra fram fjármálaáætlun þar sem gert er ráð fyrir lækkun húsnæðisstuðnings, eins og til að niðurlægja hann. Hvað á þetta að þýða? Er ekkert að marka þetta fólk? Hvers vegna segja þau eitt í fjölmiðlum og gera svo eitthvað allt annað í ríkisstjórn og hér á þinginu og með þeim þingmálum sem lögð eru fram? Er til of mikils mælst að þau standi við fyrirheit sem fram koma í stjórnarsáttmála og hætti þessari eilífu vinsældakeppni?