fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Það eru að sjálfsögðu fleiri þættir sem við megum ekki gleyma í þessari jöfnu um húsnæðisverð. Hækkun launa, aukinn kaupmáttur, meiri kaupgeta eða vilji til þess að leggja fram hina nýju mynt sem hv. þingmaður dró hér upp, húsnæðiskrónurnar. Við skulum ekkert útiloka þessa þætti. Framboð á lánsfé, fáir fjárfestingarkostir sem buðust til skemmri tíma eða á markaði fyrir fjárfesta sem fóru þá líka inn á íbúðamarkaðinn. Við skulum ekki gleyma þeim áhrifum heldur.
Við erum þar stödd í umræðu um fjármálaáætlun næstu ára, virðulegur forseti, að rætt er um stefnumörkun í húsnæðismálum og þetta verkefni sem við erum að ræða hérna, hvernig við ætlum að laga þessa stöðu, getum við tekið upp við fagráðherra þess málaflokks og spurt hann um þegar fram líður í þessari umræðu.
Seinni spurning hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar er: Hvað finnst hv. þingmanni um að hafa tapað 30 milljörðum í fyrstu sölu Íslandsbanka? Ég ætla að leyfa mér, virðulegur forseti, einfaldlega að segja að það verð sem bankinn var boðinn á í fyrra útboði, 79 kr., var talið af þeim sem báru ábyrgð á því eða voru ráðgjafar stjórnvalda í því, það verð sem væri mögulegt að fá fyrir hlutina. Það varð síðan mikil eftirspurn. Við getum alveg verið sammála um það, ég og hv. þingmaður, að við skutum kannski of lágt. En það eru líka miklar væntingar sem drífa líka áfram hækkun hlutabréfa þannig að við getum ekki sagt að þetta séu glataðir peningar ríkissjóðs. Ef við værum alltaf að hugsa svona þá gætum við aldrei þorað að selja nokkurn skapaðan hlut. Hvað getum við þá sagt um einhvern sem seldi bílinn sinn sem er allt í einu orðinn verðmætari í dag? Það er útúrsnúningur að nefna það með þessum hætti. Ég ætla bara að segja að það eru fyrst og fremst væntingarnar (Forseti hringir.) sem hafa drifið áfram þessa hækkun á hlutabréfaverði sem hv. þingmaður nefnir.