fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Fyrst vil ég víkja að því sem hv. þingmaður þakkaði fyrir og fannst vera afdráttarlaus yfirlýsing, ég vil rifja það upp. Við skulum bara vera ærleg og setja þetta í rétt ljós. Við seldum á miklum óvissutímum í efnahagslífinu, vorum með spár um miklu meiri dýfu í efnahagslífinu en síðan varð og við erum að rétta miklu hraðar úr kútnum. Það var svo sem rætt um það í frumútboðinu að við værum að ganga fram á óvissutímum. Ég ætla ekki að kasta neinni rýrð á þá sérfræðinga sem voru ráðgjafar í þeim efnum og töldu þetta ásættanlegt verð. Síðan ræður markaðurinn bara, hann er hinn eini raunverulegi verðleggjandi og við getum svo haft allar skoðanir á því hversu skynsamlegur markaðurinn er í að verðleggja. Mig langar bara, vegna spurninga hv. þingmanns um Sjúkrahúsið á Akureyri, að segja að við erum með 260 milljarða til útgjalda í heilbrigðismál í fjármálaáætlun fyrsta árið, 258 milljarða ef ég hef ekki reiknað þetta kolvitlaust. Vandi einstakra stofnana, í þessu tilfelli Sjúkrahússins á Akureyri, og þær tölur sem hv. þingmaður nefnir hér í því sambandi — ég ætla ekki að gera lítið úr þeim vanda — eru í því samhengi ekki háar. Við hljótum, þegar við ræðum við hæstv. heilbrigðisráðherra seinna í þessari umræðu, að gera þá kröfu til þeirra sem fara með fjárstjórnarvaldið á þessu heimili heilbrigðismála að svara miklu frekar fyrir það en ég geti einn og sér leyst það. Ég ætla alveg að vera sammála hv. þingmanni um að sú þjónustuskerðing sem þarna er boðuð er óheppileg en ég vil líka minna á að í þessari fjármálaáætlun eru verulega miklir fjármunir til geðheilbrigðismála, aukning sem tíunduð er þar, um 3,2 milljarðar á áætlunartímabilinu.