152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[18:45]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu og eins er fróðlegt að heyra hér skýringar hæstv. ráðherra. Auðvitað er það þannig að þegar Alþingi samþykkir fjárheimildir fyrir framkvæmdum og fjárfestingum þá hlýtur framkvæmdarvaldið að bera ábyrgð á því að koma peningunum í vinnu. Þar fer ráðherra með yfirstjórnar- og eftirlitsskyldur og þarf þá að bregðast við jafnvel með tillögum að lagabreytingum ef það tekst ekki. En þetta er bara mikilvæg umræða sem á sér stað hér. Ég heyri að hæstv. ráðherra er meðvitaður um mikilvægi hennar.

Hér talaði hv. þingmaður m.a. um þann samdrátt sem er boðaður í útgjöldum til samgöngumála á áætlunartíma þessarar fjármálaáætlunar. Þetta er ekki eina dæmið um að málefnasvið sem heyra undir Framsóknarflokkinn í þessu ríkisstjórnarsamstarfi fái svona útreið. Mig langar að vitna hérna í orð sem innviðaráðherra og formaður flokksins lét falla í síðasta mánuði. Hann sagði:

„Sá ráðherra er hér stendur leggur mikla áherslu á uppbyggingu félagslegs húsnæðis um allt land og hefur lagt inn tillögur í fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 um verulega aukningu fjármuna til að fjölga uppbyggingu íbúða fyrir tilstuðlan opinbers húsnæðisstuðnings …“

Svo kemur reyndar fram fjármálaáætlun þar sem er í raun gert ráð fyrir að lækka framlög til húsnæðis- og skipulagsmála. Mig langar að spyrja hv. þm. Bergþór Ólason, sem er alla jafna svolítið næmur á þessa pólitísku kemistríu: Hvað segir þetta okkur um valdajafnvægið í þessu ríkisstjórnarsamstarfi? Er hæstv. fjármálaráðherra að leika sér að því að niðurlægja hæstv. innviðaráðherra eða hvað? Hvers vegna segir einn ráðherra eitt og hinn eitthvað allt annað?