fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Forysta Framsóknarflokksins gekk of hratt um gleðinnar dyr. Það segir hinn næmi greinandi hér. Það má kannski taka undir það í ýmsu samhengi. Þetta er ekki eini málaflokkurinn, það eru líka samgöngumálin og það eru húsnæðismálin. Þar fær Framsóknarflokkurinn þennan skell. Og svo er auðvitað bara gríðarlegt útgjaldaaðhald þegar kemur t.d. að menningarmálum og listum og þegar kemur að framhaldsskólakerfinu og þegar kemur að heilbrigðismálum, við vorum tala hérna áðan um að gert er ráð fyrir 2 milljarða aukningu á ári í rekstrarútgjöld til sjúkrahúsþjónustu, sem er svona í stóra samhenginu ekki upp í nös á ketti. Þetta er að mörgu leyti mjög aðhaldssöm áætlun sem hér er verið að boða. Ég vil gefa hv. þingmanni aftur tækifæri til að koma með næma greiningu á þessu öllu saman. Hvað þýðir þetta? Hvað segir þessi fjármálaáætlun okkur um Framsóknarflokkinn og það sem sá flokkur fær út úr þessu ríkisstjórnarsamstarfi, sigurvegari síðustu kosninga? Hvers vegna standa þau í þessu?