152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[18:51]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég verð að viðurkenna að ég hafði nú ekki tengt punktana með nægjanlega augljósum hætti hvað þetta varðar. En það er áhugavert að sjá að Framsóknarráðherrarnir fara, sýnist mér fljótt á litið, heldur illa út úr þessu, ef markmið ráðherrans er vöxtur útgjalda eigin ráðuneytis. En það er ekki ljóst hvert markmiðið er, enda held ég að ríkisstjórnin viti flesta daga ekki hvert markmiðið er í nokkru máli. Ég er að reyna að líta á þessar tölur á meðan ég svara hv. þingmanni. Það sem snýr að heilbrigðismálunum; ef bara er horft til talnanna eins og þær liggja fyrir og óbreytts kerfis þá blasir við að við munum aftur sjá myndir af sjúkrarúmum í bílageymslunni ef fram heldur sem horfir. En skilaboðin til heilbrigðisráðherra sem ég held að hljóti að felast í þessari fjármálaáætlun eru að honum sé uppálagt að fara í meiri háttar uppstokkun á því hvernig kerfið er rekið. Ég held að það sé það eina sem hægt er að lesa út úr þessu. Fyrrverandi landlæknir sagði það, nú vona að ég hafi rétt eftir, en svona efnislega sagði hann að það væri hægt að setja endalaust af peningum í heilbrigðiskerfið en það myndi aldrei duga ef kerfið yrði ekki lagað. Þannig að ég ætla að leyfa mér að greina þessi skilaboð, fjármálaáætlun, með þeim hætti að hæstv. heilbrigðisráðherra sé uppálagt að fara í meiri háttar uppstokkun sem ég er ekki alveg sannfærður um að hann viti hver eigi að vera. En skilaboðin munu örugglega berast á einhverjum tímapunkti.