152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[19:09]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég kem aðeins fyrst að því sem hv. þingmaður nefndi í lokin, sem eru heilbrigðismálin, einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs, og hann nefndi þar sérstaklega lýðheilsu. Ég vil vekja athygli á því að þegar horft er á heilbrigðismálin í þessari áætlun þá hækka framlög um 26 milljarða á milli áranna 2022–2026. Að sjálfsögðu fjölgar þjóðinni og hún eldist þannig að það er auðvitað hluti af þessu reikningsdæmi. En þarna eru líka ýmsir mikilvægir póstar sem snúast beinlínis um að efla og bæta þjónustuna. Ég vil nefna geðheilbrigðisþjónustuna sem við efldum verulega á síðasta kjörtímabili. Við erum öll sammála um að það þarf að halda áfram og gert er ráð fyrir því að halda áfram að efla hana. Þar erum við að tala um heildaraukningu upp á 1,7 milljarða, og ég held að þetta sé mikilvægt lýðheilsumál, og fjárfestingu sem verður auðvitað áfram mikil og síðan greiðsluþátttöku sjúklinga sem ég veit að við hv. þingmaður erum sammála um að er algjört lykilatriði. Það er eitt af þessum velsældarmálum. Hvað lýðheilsuna varðar veit ég að heilbrigðisráðherra, sem verður hér til svara, hefur mikinn hug á því að leggja áherslu á þau málefni. Þá kem ég kannski að mínum málaflokki, jafnréttismálunum, sem hv. þingmaður nefndi. Það er rétt að heildarfjárheimildir til málaflokksins eru á yfirstandandi ári 368 milljónir en það eru hlutir innan þeirra framlaga sem eru tímabundin framlög sem ég get verið sammála hv. þingmanni um að við þurfum að ræða á Alþingi hvort ættu að verða varanleg. Ég vil hins vegar benda á að við eigum eftir að sjá breytingar á kjörtímabilinu þegar kemur að mannréttindamálum. Þar stendur fyrir dyrum töluvert umfangsmikil vinna um grænbók um mannréttindi. Ég vonast til þess að sú kortlagning, sem er undir forystu jafnréttis- og mannréttindaskrifstofu (Forseti hringir.) ráðuneytisins, verði grunnurinn að nýrri mannréttindastofnun sem fyrirheit er um í stjórnarsáttmála, (Forseti hringir.) sem er ekki fjármögnuð í þessari fjármálaáætlun en ég sé fyrir mér að komi inn (Forseti hringir.) þegar frumvarp um hana hefur verið lagt fram.