152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[19:22]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég vil fyrst benda á, af því að við ræðum hér um viðkvæma hópa og fólkið sem höllustum fæti stendur, að í viðbrögðum okkar við heimsfaraldri horfðum við sérstaklega til viðkvæmra hópa. Þegar við tökum það saman hverju við höfum varið til stuðnings og þjónustu við viðkvæmustu hópa samfélagsins, og þá er ég að tala um sérstök verkefni, höfum við varið 13,8 milljörðum í þá þjónustu. Þá er ég bara að tala um beinar fjárveitingar til félagslegra verkefna og málaflokka til að tryggja þjónustu og stuðning, bein framlög til þess að tryggja betur afkomu þessara hópa, ekki þessar almennu vinnumarkaðsaðgerðir.

Hv. þingmaður nefnir hér eðlilega almannatryggingakerfið, þar sem framlög til örorku og málefna fatlaðra hækka um 10,5 milljarða á tímabilinu samkvæmt áætluninni. Þar með talið er gert ráð fyrir auknum framlögum til að hefja endurskoðun á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga með sérstöku framlagi til nýs kerfis starfsendurhæfingar og vinnumarkaðsúrræða til að styðja við atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu og fjölga starfstækifærum. Við eigum svo von á því að félags- og vinnumarkaðsráðherra leggi hér fram frumvarp á þessu kjörtímabili, vonandi fyrri hluta þess kjörtímabils, með það að markmiði að gera þetta kerfi betra, eins og við höfum svo oft rætt, ég og hv. þingmaður, sem er mikill og ötull baráttumaður fyrir því að bæta kerfið. Ég held við séum sammála um að við viljum gera það gagnsærra og réttlátara. Meðan útfærslan liggur ekki fyrir er kannski óvarlegt að vera að slumpa á fjárhæðir hér í fjármálaáætlun. Hins vegar mun þingið fá þessar lagabreytingar til afgreiðslu og þá mun sömuleiðis kostnaðurinn við þær birtast í fjárlögum og áætlunum næstu ára. Ég er líka bjartsýn á það, af því við erum að tala um fjárfestingu, ég held að aukin þátttaka þessara hópa muni líka að skila sér í auknum umsvifum þeirra í samfélaginu og í auknum tekjum þeirra til samfélagsins. Þannig að ég hef mikla trú á því að þessar breytingar geti orðið til góðs, ekki bara fyrir einstaklingana heldur líka þegar við horfum á reikningsdæmið allt saman, eins og hv. þingmaður nefndi hér.