152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:04]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Hvað dvelur orminn langa? Ég held að búið sé að ræða það í a.m.k. átta ár, kannski fleiri, tíu jafnvel, að gera rafræna mannvirkjaskrá og að húsnæðisáætlanir sveitarfélaga liggi fyrir og séu rauntímaupplýsingar. Það er þó gott ef þetta er loksins að raungerast og hægt að hætta að telja krana og húsbyggingar og senda menn á bílum út um sveitarfélögin til að gera það. Vonandi er þetta nú að komast á réttan stað. En ég verð að viðurkenna, hæstv. forseti, að ég er undrandi á þessum seinagangi.

Hvað varðar stofnframlögin, já, það þarf að útfæra þau betur og það þarf að vera hægt að byggja. Það er alveg rétt. Við vitum að ástand uppbyggingar víða í sveitarfélögunum, a.m.k. í mínu kjördæmi, í Suðvesturkjördæmi, hefur verið bagalegt, svo að ekki sé fastar að orði kveðið, á síðustu fjórum, fimm árum. Það hefur reyndar verið byggt upp nýtt hverfi í Urriðaholti í Garðabæ en það er nokkurn veginn það sem hefur verið byggt upp fyrir utan þéttingarreitina á höfuðborgarsvæðinu.

Ég ætla að nota tækifærið og minna á það hér í þessum sal að verkalýðshreyfingin, forystufólk verkalýðshreyfingarinnar, hefur talað mjög skýrt í húsnæðismálum og öll vitum við að það brestur á með nýrri kjaralotu og kjarasamningum í haust og það hlýtur að vera skilningur okkar allra hér, hvort sem við erum í stjórn eða stjórnarandstöðu, að framfarir í húsnæðismálum, að aukið framboð af húsnæði, sem venjulegt fólk ræður við að kaupa eða leigja, sé lykillinn að því að hægt sé að gera kjarasamninga í haust.