152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:06]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil bara koma hér upp og taka undir með hv. þingmanni. Ég held að allir séu sammála um það að lausnin að áframhaldandi velsæld í þessu landi sé að líta á húsnæði sem einhvers konar öryggismál en ekki áhættufjárfestingu. Hluti af því er að tryggja fjölbreytt úrræði fyrir ólíka hópa. Í dag eru líklega 30% íbúða að einhverju leyti byggðar með tilstuðlan opinberra aðila, annaðhvort beint eða óbeint. Við höfum verið að skoða þá sviðsmynd hvort kannski þurfi að fara með það upp í 35% á meðan við erum að ná jafnvægi. Þess vegna höfum við kynnt til sögunnar hvort til greina komi að vera með svokallaðan félagslegan eignastuðning ofan í hlutdeildarlánin. Það mætti líka hafa hlutdeildarlánin í tveimur ólíkum aðgerðum en almennu íbúðirnar með stofnframlögunum sem og öðrum stuðningi sem við beitum til að stuðla að fjölbreyttu húsnæði sem allir geti eignast eða í það minnsta komist í. Við þurfum auðvitað líka að tryggja að leigumarkaðurinn sé virkur og leigan á þeim markaði eðlileg fyrir þann hóp. Ég gleðst yfir því að þingmaðurinn tekur þetta upp hér. Ég er sammála því að hluti af því að ná fram skynsamlegum kjarasamningum í haust verða einhvers konar svör við því sem við erum að vinna akkúrat núna í húsnæðismálunum.