152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:10]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Þórðardóttur fyrir góðar spurningar um húsnæðismálin. Það er rétt að ef við berum saman t.d. fjárlög síðustu fimm ára hafa um 57 milljarðar runnið til þeirra en verða 61 á næstu fimm árum. Það er ljóst að við munum þurfa að bæta enn frekar við. Í fyrri ræðu var ég að ræða um að stofnframlögin lækka til að mynda strax á næsta ári um 2 milljarða og við erum að skoða hvernig við getum útfært það og fleiri þætti. Það er mjög mikilvægur þáttur í því. Varðandi síðan framboðið á lóðum þá er ég sammála hv. þingmanni að það er auðvitað á ábyrgð sveitarfélaganna og einn góður liður í því að hafa sett saman í þessu ráðuneyti bæði sveitarstjórnarmálin og húsnæðis- og skipulagsmálin er einmitt sá að nú höfum við sameiginlega yfirsýn í sama ráðuneytinu og getum kannski beitt frekari tækjum. Ég nefndi það í minni ræðu og ég nefndi það hér í púlti einhvern tíma fyrr í vetur að við stefnum að því að taka samtal við sveitarfélögin. Það er reyndar hafið í sérstökum starfshópi sem við höfum sett á laggirnar undir þjóðhagsráði og við forsætisráðherra stýrum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þar er þessi greiningarvinna þegar hafin í einum fimm undirhópum sem lúta allir að því að fá yfirsýn yfir húsnæðismálin, greina hvar vandinn er og koma með tillögur að úrbótum. Ein leiðin til þess er, eins og ég nefndi í ræðu minni, að gera samninga við einstök sveitarfélög um framboð af lóðum, nægilega margar byggingarhæfar á hverjum tíma í samræmi við húsnæðisáætlanir og mannfjöldaspá á hverjum tíma. Og það kemur líka til greina sem hv. þingmaður nefndi, (Forseti hringir.) að skoða aðrar leiðir eins og eignarland ríkis ef það má verða til þess að tryggja nægilegt framboð.