fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Ég vil víkja aftur að síhækkandi húsnæðisverði og áhrifum þess á verðbólgu sem mun fyrirsjáanlega hafa í för með sér stórfelldar hækkanir á greiðslubyrði heimila með verðtryggðar húsnæðisskuldbindingar. Flokkur fólksins hefur lagt fram frumvarp um afnám húsnæðisliðar úr vísitölu neysluverðs til verðtryggingar og a.m.k. þrír ráðherrar Framsóknarflokksins, þar á meðal hæstv. innviðaráðherra, hafa lýst sig fylgjandi þeirri hugmynd. Verðbólga með húsnæðisliðnum inniföldum mælist nú 6,7% en án húsnæðisliðarins mælist hún 4,6% eða 2,1 prósentustigi lægri. Er því ljóst að afnám húsnæðisliðarins myndi draga talsvert úr hækkunum á verðtryggðum húsnæðisskuldbindingum. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi borið þetta málefni fram við ríkisstjórnarborðið og kannað hljómgrunninn fyrir því að afnema húsnæðisliðinn. Hyggst ráðherra berjast fyrir því að gera allt sem hann getur til að afla málinu stuðnings? Ég get alveg fullyrt að það mun ekki mæta andstöðu hjá Flokki fólksins.
Ég vil líka taka undir með hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur að við þurfum að auka stofnframlögin. Einnig vil ég víkja að stefnumótun í húsnæðismálum. Samkvæmt greinargerð um málaflokkinn í fjármálaáætlun verður stefna og aðgerðaáætlun stjórnvalda í húsnæðismálum ekki lögð fram á Alþingi fyrr en á næsta þingi, eða fyrsta lagi í haust. En vandinn er núna og hann er ekki nýtilkominn heldur hefur verið lengi fyrirsjáanlegur. (Forseti hringir.) Hvers vegna er slík stefnumótun ekki löngu tilbúin? Eftir hverju þarf að bíða? Er ekki hægt að hefjast handa strax? Það blasir við hvað gera þarf, auka lóðaframboð o.s.frv.