152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Jú, það er hárrétt munað hjá hæstv. ráðherra að ég gagnrýndi að loftslagsmarkmið hefðu ekki verið eitt af því sem samgönguáætlanir síðasta kjörtímabils voru metnar upp við. En ég gerði það líka vegna þess að það stóð í stjórnarsáttmála þeirrar ríkisstjórnar að það ætti að meta allar stærri áætlanir ríkisins út frá áhrifum á loftslagsmál. Það var bara ekki gert. Það var ekki staðið við þetta loforð stjórnarsáttmálans. Núna sýnist mér það sama vera uppi á teningnum með metnaðarfyllri markmið um samdrátt í losun. 55% samdrátturinn er ekki í þessari áætlun. Hér á málefnasviði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra er talað um að losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum á Íslandi fari niður í 700 kílótonn af koltvísýringsígildum árið 2027. Þessi losun er eiginlega öll frá vegasamgöngum. Við þurfum ekkert rafeldsneyti til að leysa þann vanda, þetta eru bara bílar. Ef 55% markmiðið ætti að halda þyrfti losunin ekki að fara niður í 700 heldur niður í 350 kílótonn, árið 2030 að vísu, þremur árum seinna, en þetta er á allt öðrum skala. Og ég er ekki að tala um að við þurfum endilega að vera hérna með fullmótaðar hugmyndir í höndunum, bara skýrar og klárar áætlanir, en að markmiðin séu ekki í samræmi við það sem ríkisstjórnin í samstarfsyfirlýsingu sinni segir vera markmið sitt í loftslagsmálum þykir mér skjóta skökku við.

Svo velti ég fyrir mér, svo ég fari nú í kafla ráðherrans sjálfs en sé ekki alltaf hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, að það er sett markmið um samdrátt í meðaltalslosun gróðurhúsalofttegunda frá fólksbílum. Það er svona það sem helst kemur fram tengt þessum málum. Ég velti því fyrir mér hvort vanti ekki líka markmið — þetta væri hægt að kalla markmið um orkuskipti — hvort vanti ekki líka markmið um umferðarmagn, um það að við þurfum að fara að draga úr eknum kílómetrum í landinu til að ná þeim markmiðum sem við verðum að ná.