fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að brydda upp á umræðu um samgöngusáttmálann. Ég get verið sammála þingmanninum um að þetta er eitt af þeim mikilvægari verkum sem við höfum sett á laggirnar, eins og reyndar má kannski segja um samgönguáætlun í heild sinni og ýmis önnur stór stórvirki sem eru í gangi; lúkningu verkefna á suðurfjörðum Vestfjarða, Sundabraut, svo fleira sé nú nefnt. Það tókst sem betur fer á síðasta kjörtímabili að koma í framkvæmd, með atbeina allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, auk ríkisins, samningi sem gerður var til 15 ára um uppbyggingu upp á a.m.k. 120 milljarða framkvæmdir, sem tók við þeirri stöðu sem var að mínu mati óbærileg, að menn höfðu samið um að gera ekkert í tíu ár og umferðarþunginn og -tafirnar höfðu vaxið. Ég veit ekki hvort ég á að trúa því að heilu samfélögin skipti svo um skoðun þó svo menn lýsi einhverjum skoðunum sínum í prófkjörum til að fá framgang hjá sínum flokkum. Kosningarnar eru jú eftir. Íbúarnir eiga eftir að segja sitt álit. Við erum með þetta verkefni í ágætum farvegi. Við stofnuðum fyrirtæki, Betri samgöngur, með sveitarfélögunum og sveitarfélögin eiga aðild að. Þar mun fara fram þróun og samtal um þessa hluti. Þannig að ég vil nú ekki taka undir ótta hv. þingmanns um að einstök sveitarfélög fari að bakka út úr þessu mjög svo þarfa, uppbyggilega verkefni sem samgöngusáttmálinn er. Og varðandi stefnu okkar Framsóknarmanna — og það er rétt og gaman að hv. þingmaður getur þess hér að við erum með fullt af nýju, öflugu fólki í framboði á höfuðborgarsvæðinu — þá höfum við auðvitað verið þeirrar skoðunar að það sé skynsamlegast að fara í fjölbreytta uppbyggingu. Samgöngusáttmálinn er það.