152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:33]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og að fara yfir þetta hérna. Ég get tekið undir margt af því sem þarna kom fram og tek undir að það er óskandi að það verði ekki eitthvert bakslag í þessa miklu uppbyggingu sem fyrirhuguð er hér á næstu árum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli, eins og vel er búið að fara yfir.

En mig langaði líka aðeins að fá að spyrja hæstv. ráðherra hér í þessari umræðu um fjármálaáætlun um hvert við stefnum í efnahagsmálum til lengri tíma. Mig langaði kannski aðeins að höfða til þess sem sagt hefur verið af hálfu þeirra sem stýra landinu núna í Covid-faraldrinum. Þegar vextir fóru að lækka mikið þá var svolítið talað um, ég ætla að leyfa mér að segja pínulítið glannalega, að hér værum við að detta inn í eitthvert almennt lágvaxtaumhverfi sem gæti verið til lengri tíma. Auðvitað eru vextir enn þá lágir í sögulegu íslensku samhengi en þeir fara hækkandi og miðað við það hvernig hlutir eru að þróast úti og verðbólga almennt þá má alveg búast við því að þeir hækki jafnvel talsvert mikið. Stendur þessi fjármálaáætlun ekki á svolítið veikari fótum með allar þessa hræringar sem eru og óvissu um langtímahorfurnar?

Mig langaði líka gjarnan, ef ég mætti, til að spyrja hæstv. ráðherrann um jöfnunarsjóðinn. Lögin segja að það skuli ekki greiða sveitarfélögum með fleiri en 70.000 íbúa úr jöfnunarsjóði. Það hafa margir túlkað sem svo að því sé beint gegn höfuðborginni því að það er auðvitað eina sveitarfélagið sem fellur þá nákvæmlega á því prófi, ef við getum orðað það þannig. Á sama tíma tekur Reykjavík við miklu fleiri félagslegum verkefnum en önnur sveitarfélög; þar eru miklu fleiri börn af erlendum uppruna með annað tungumál en íslensku að móðurmáli, en samt fær Reykjavík ekki greitt úr þessum sjóði sem á að jafna leik sveitarfélaga. Ég velti því fyrir mér: Hvað segir þetta um forgangsröðun ríkisstjórnarinnar þegar kemur að þessum málum?