152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:37]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Mig langar hér við þennan hluta umræðunnar að spyrja hæstv. innviðaráðherra út í mál sem ég ætlaði að spyrja út í í óundirbúnum fyrirspurnum á morgun. Þar sem það tengist fjármálaáætluninni ætla ég að grípa tækifærið núna. Þetta snýr að því með hvaða hætti ráðuneytið svaraði bréfi ESA er varðar fjárhagslega afgreiðslu og uppgjör Félagsbústaða í uppgjöri Reykjavíkurborgar, 70 milljarða álitaefni sem hefur verið undir. Í framhaldinu, það fer kannski eftir því hvernig hæstv. ráðherra svarar því, með vísan í bréfið sem var með lokasvardag eftir framlengingu í þarsíðustu viku, spyr ég hver afstaða ráðuneytisins til þess hafi á endanum verið. Er Reykjavíkurborg að gera þetta upp með fullnægjandi og réttum hætti? Eða er staðan sú að 70 milljarða tilfærsla verður uppi hvað eigin fé samstæðunnar varðar?