152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:51]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra hefur staðið sig ágætlega á annasömum tímum upp á síðkastið en ég sakna hreinlega meiri metnaðar þegar kemur að því að gera heiminn betri og öruggari. Það er ljóst að heimsfaraldurinn hefur snert viðkvæmustu hópa heimsbyggðarinnar illilega og Sameinuðu þjóðirnar spá að um 275 milljón manns þurfi á mannúðaraðstoð og vernd að halda árið 2022. Þá hefur ójafnt aðgengi að bóluefni ýkt þessa þróun og stríðið í Úkraínu örugglega til viðbótar. Hækkandi heimsmarkaðsverð á matvöru mun líka hafa slæm áhrif. Fátæk ríki eru líka viðkvæmari fyrir þeim loftslagsbreytingum sem við erum að fást við þó að þau beri vissulega miklu minni ábyrgð en við iðnríkin. Í fyrsta skipti horfum við því upp á vaxandi fátækt í heiminum og hún mun aukast ef ekkert verður að gert.

Í því ljósi langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra ellefta ríkasta lands heimsins hvort ekki eigi að gera meira í þróunarsamvinnu. Íslendingar greiða 0,35% af vergri þjóðarframleiðslu sem er nákvæmlega helmingi lægra en markmið Sameinuðu þjóðanna sem við styðjum. Til samanburðar er framlag Svía 1,1%, Noregs 1% og Danmerkur 0,8% og miðað við framlagða fjármálaáætlun er ekkert að breytast og það mun ekki batna neitt. Finnst hæstv. utanríkisráðherra okkur vera sæmandi að vera ekki einu sinni hálfdrættingar á við frændþjóðir okkar? Og er ekki ráðherra sammála því að þessi langvarandi stríðsátök og neikvæð áhrif loftslagsbreytinga muni hafa slæm áhrif á friðarhorfur í heiminum? Og eru virkilega engin áform um að gera neitt betur en að standa í stað næstu fjögur til fimm árin?