152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:54]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Ég er sammála hv. þm. Loga Einarssyni þegar hann segir og spyr hvort ellefta ríkasta landið eigi að gefa í og vera raunveruleg þjóð meðal þjóða og yfir meðaltali þegar kemur að þróunarsamvinnu. Ég er hins vegar ánægð að sjá að fjármagn hefur aukist í þróunarsamvinnumálefnasviðið og -málaflokkinn. 0,35% af vergri landsframleiðslu eru þó yfir meðaltali innan OECD en ég ætla ekki að deila við hv. þingmann um hvort við eigum að hafa meiri metnað en það. En við erum þá alla vega á réttri leið þegar kemur að fjárframlögum.

Hins vegar stöndum við einfaldlega frammi fyrir óvissu í heimsmálum almennt, í öryggis- og varnarmálum, í loftslagsmálum, í matvælaframleiðslu, í matvælaöryggi, eftir heimsfaraldur, aukin hungursneyð o.s.frv., og ég geri frekar ráð fyrir því en hitt að við munum þurfa að gefa enn frekar í, ekki af því að það er það sem er rétt að gera heldur muni bara svo margt breytast að við munum þurfa að endurhugsa margt. Ef við munum þurfa að endurhugsa það þá höfum við tækifæri til að gera slíkt í endurskoðaðri fjármálaáætlun eða uppfærðri á næsta ári. Hvort það verði eða með hvaða hætti ætla ég ekki að segja til um hér. En það er alveg ljóst að óvissuþáttum er ekki að fækka í veröldinni og við höfum þar hlutverki að gegna. Þrátt fyrir að vera fámenn erum við þjóð meðal þjóða og við viljum gera vel og við gerum vel. En ég er ekki ósammála hv. þingmanni um að við eigum mögulega að gera meira en það. En við erum þó alla vega á réttri leið í þeim efnum.