152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[20:56]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Já, nú er það einmitt hlutverk fjármálaáætlunar að reyna að sjá fram fyrir í tíma og sækja fjárheimildir til þingsins, ekki láta reka á reiðanum og koma svo að sækja peningana eftir á. Ég spurði hæstv. fjármálaráðherra fyrir nokkrum dögum um útgjöld sem eru örugglega að fara að birtast okkur, m.a. vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu. OECD hefur metið það svo að þetta gæti kostað Evrópu 0,25% af vergri landsframleiðslu. Yfirfært á Ísland eru það um 7 milljarðar kr. á ári eða tveir þriðju af því sem fer í þróunarsamvinnu frá Íslandi. Um þetta er ekkert í fjármálaáætlun þó að þetta sé fyrirséð.

Í öðru lagi spurði ég ráðherra um netöryggi vegna þess að við erum sú þjóð í heiminum sem er nr. 1 þegar kemur að notkun á neti, símum og slíkum tækjum en erum nr. 67, minnir mig, á listanum yfir þau lönd sem búa við best öryggi. Það er augljóst að gera þarf betur í þeim málum enda liðu ekki nema 20 klukkutímar frá því að við áttum orðaskipti hér, ég og fjármálaráðherra, þangað til hæstv. forsætisráðherra kom af fundi að utan og boðaði aukin framlög til netöryggis. Ég fagnaði því. En hvar er sá peningur í fjármálaáætlun? Hann er hvergi að finna. Við erum ekki að tala um tuttugukall eða fimmtíukall og heldur ekki 3.500 kr., við erum að tala um nokkra milljarða sem þarf í þetta verkefni. Er ekki miklu eðlilegra að framkvæmdarvaldið sætti sig við stjórnskipun landsins sem felst í því að það leggur upp með áætlun, kemur hingað inn til þingsins, við samþykkjum og það fer til baka og framkvæmir, í staðinn fyrir þann plagsið, sem búið er að stunda allt of lengi, að fjármálaáætlanir séu bara framreiknaðar ár eftir ár og svo er það sem fer fram úr bara sótt eftir á?