fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir að eiga við okkur orðastað varðandi fjármálaáætlunina. Í ljósi þeirra heimsviðburða sem nú eiga sér stað liggur fyrir að varnar- og öryggismál eru rækilega komin á dagskrá hér á landi sem og í hinum vestræna heimi. Það er óþarfi að fara löngum orðum um mikilvægi þess að þjóðaröryggi sé í fyrsta sæti, sér í lagi við aðstæður sem þær sem upp eru komnar. Segja má að innrás Rússa og yfirtaka þeirra á Krímskaga hafi markað ákveðin tímamót. Þó má ekki gleyma því að Rússar höfðu áður brotið undir sig Tsjetsjeníu og auk þess ráðist inn í Georgíu. Við sáum þá á umferðinni um Keflavíkurflugvöll og á varnarsvæðinu í kjölfar innrásarinnar á Krímskaga hvernig öryggismálin í álfunni voru að breytast. Nú er aftur á móti búið að hefja allsherjarstríð í Úkraínu. Á síðustu dögum höfum við því miður fengið að sjá með eigin augum myndir af voðaverkum rússneska hersins í kjölfarið á því að þeir eru að hörfa frá svæðum sem þeir hernumdu í upphafi stríðsins, voðaverkum sem vart er hægt að lýsa með orðum og geta varla kallast annað en stríðsglæpir. Áhrif stríðsins í austurhluta Evrópu, virðulegi forseti, eru hnattræn en öryggis- og varnarmál okkar sem herlausu þjóðarinnar í norðri eru að sjálfsögðu mjög mikilvæg. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra að því hvort það hafi verið einhver þrýstingur frá okkar samstarfsþjóðum, m.a. innan NATO, á að við myndum leggja meira til varnarmála en við þó erum að gera sem herlaus þjóð og hvort hún sjái fyrir sér í hvaða samhengi það yrði gert.