fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Nú hefði verið gott að hafa þrjár hendur. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna um hennar málaflokk og þar er sannarlega af mörgu að taka og margt sem væri hægt að ræða. Mig langar að halda áfram við þetta fyrra tækifæri sem ég hef til að bera upp spurningu til ráðherra og ræða þróunarsamvinnu vegna þess að ég er í fyrsta lagi mjög ánægð með það að við erum að auka framlögin. Ég tel að það skipti gríðarlega miklu máli en ég tel jafnframt að það þurfi að auka enn frekar í, heimurinn þarf einfaldlega á því að halda.
Mig langar að fagna sérstaklega orðum ráðherra í öðru samtali við hv. þingmann varðandi það að ráðherrann muni verja 0,35% og kannski ekki telja allt fram sem hægt væri tæknilega sem DAC-kostnað. Ég held að það skipti alveg rosalega miklu máli í því ástandi sem við erum í núna að sjá til þess að fjármunir fari úr landi á sama tíma og við gerum vel hér heima. Það sem mig langar að spyrja út í er þróunarsamvinna og eftirköstin af Covid og réttindi kvenna, sem því miður hafa farið aftur á bak víðs vegar um heiminn, og hvort byrjað sé að vinna að því hvernig sé hægt að komast aftur á þann stað þar sem við vorum fyrir faraldurinn. Ég held að við höfum mikil sóknarfæri vegna þess að þróunarsamvinnan okkar er svo góð. Við erum að gera svo mikilvæga hluti. En ég held að auk þess sem við erum að gera nú þegar þurfi að horfa til þeirra áhrifa sem Covid hefur haft.